Fara í efni
Fréttir

Hluta Borgarbrautar lokað vegna Móahverfis

Framkvæmdir hefjast í Móahverfi á mánudaginn og þá verður nyrsta hluta Borgarbrautar lokað eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Einnig mun koma til tímabundinna lokana á hluta Síðubrautar.

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þar sem segir einnig að allri umferð vinnuvéla og þungra ökutækja verði beint um stofn- og tengibrautir til að lágmarka ónæði í íbúðahverfum.

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum.

Nánar hér á vef Akureyrarbæjar.