Fara í efni
Fréttir

„Hlustunarfundur“ með Kristrúnu í hádeginu

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Mynd af Facebook síðu Kristrúnar.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra býður til hlustunarfundar í Hamri, félagsheimili Þórs, kl. 12 í dag sunnudaginn 16. ágúst. „Kristrún er nú á fundaferð um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst,“ segir í tilkynningu.
 
„Það er alltaf gaman að koma norður og ég hlakka til að eiga hreinskiptið samtal við Norðlendinga um hagsmuni Íslands nú í hádeginu. Hlustunarfundirnir eru vettvangur fyrir já-fólk, nei-fólk og óákveðna og það hefur gefið mér mikið að hlusta á ólík sjónarmið og væntingar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna,“ segir Kristrún, sem hóf fundaferðina með hlustunarfundum í Reykjanesbæ, á Eskifirði og Djúpavogi í nýliðinni viku.
 
„Ég trúi því að við getum tekið þessa stóru og mikilvægu ákvörðun sameinuð sem þjóð, án þess að láta umræðuna sundra okkur. Samtöl mín við fólk á fundum í vikunni hafa styrkt mig enn frekar í þeirri trú.“
 
Eftir fundinn á Akureyri liggur leið Kristrúnar á Hólahátíð, þar sem hún mun flytja hátíðarræðu í Hóladómirkju kl. 16.
 
Næstu hlustunarfundir Kristrúnar verða á Patreksfirði og í Borgarfirði þriðjudaginn 18. ágúst. Ítarlegar upplýsingar um alla fyrirhugaða hlustunarfundi má finna á samfélagsmiðlum Kristrúnar.