Fara í efni
Fréttir

Hiti og úrkoma yfir meðallagi í september

Svartþröstur gæðir sér á reyniberi í Lystigarðinum á Akureyri á dögunum. Þau hafa væntanlega þroskast vel í ágætu septemberveðrinu. Mynd: Emma Huld Steinarsdóttir

Meðalhiti á Akureyri var 0,6 stigum yfir meðallagi í september og úrkoma var einnig meiri en að jafnaði. Loftþrýstingur var óvenjulágur í mánuðinum og úrkomusamt var víða um land, sérstaklega undir lok september. Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofu Íslands um tíðarfar í september.

Meðalhitinn á Akureyri mældist 8,6 stig í september, sem er 0,6 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti á landsvísu var 8,0 stig, eða 0,3 stigum yfir sama meðaltali. Hæsti hiti mánaðarins mældist í Bakkagerði á Borgarfirði eystra, 22,5 stig þann 8. september. Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Steinum undir Eyjafjöllum, 10,2 stig, en lægstur á Þverfjalli, 2,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal, 5,6 stig.

Sólskinsstundir á Akureyri voru 94,3 í september, eða 3,8 stundum fleiri en að meðaltali árin 1991 til 2020. Í Reykjavík mældust 123,9 sólskinsstundir, sem er 5,6 stundum yfir meðallagi.

Úrkoma getur verið falleg; til dæmis á ljósmynd, í nánu samstarfi við lauf í haustklæðum ... Heildarúrkoma á Akureyri var yfir meðaltali í september. Útsendari akureyri.net rakst á þessa dýrð við Eyrarlandsveg um miðjan mánuðinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Úrkoma yfir meðallagi

Heildarúrkoma á Akureyri mældist 56,5 millimetrar í september, sem er um sex prósentum yfir meðallagi. Úrkoma mældist einn millimetri eða meiri á 13 dögum mánaðarins, sem eru fjórum fleiri dagar en að meðaltali árin 1991 til 2020. Úrkoma var yfir meðallagi í flestum landshlutum, en minni en að jafnaði á suðvesturhorninu. Seinni hluti september var sérlega úrkomusamur, einkum síðasta vikan. Mest bar á úrkomunni á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suðurlandi og Suðausturlandi, auk Miðhálendisins. Skriðuföll og grjóthrun urðu á nokkrum þessara svæða.

Sumarið hlýtt og sólríkt á Akureyri

Ef tímabilið frá frá júní til september er skoðað sérstaklega, þá var hlýrra en að jafnaði á Akureyri. Meðalhiti þessara fjögurra mánaða var 10,4 stig, eða 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Sumarið var það 19. hlýjasta á Akureyri frá upphafi mælinga fyrir 146 árum.

Úrkoma mældist 158,3 millimetrar yfir sumarmánuðina fjóra, sem er um fimm prósentum yfir meðallagi. Úrkomudagar voru einnig fleiri en venjulega; 37 daga mældist úrkoma einn millimetri eða meiri, níu dögum fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundir voru hins vegar töluvert fleiri en að jafnaði. Þær mældust 659,2 á Akureyri, eða 88 stundum umfram meðaltal áranna 1991 til 2020.

Sumarið var misjafnt eftir landshlutum. Á meðan Akureyri naut hlýrra og sólríkara sumars var meðalhiti í Reykjavík lítillega undir meðallagi og úrkoma þar um 30 prósentum meiri en að jafnaði. Austanlands var sumarið víða hlýtt og á Dalatanga mældist það það þriðja hlýjasta frá upphafi mælinga.