Fara í efni
Fréttir

Hinrik og Kristín eru skyndihjálparfólk ársins

Feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir með viðurkenningar sínar á Glerártorgi í gær. Mynd: Ármann Hinrik

Feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir frá Akureyri eru skyndihjálparfólk ársins 2025. Þau veittu Bríeti, dóttur Hinriks og systur Kristínar, fyrstu hjálp eftir að hún fór skyndilega í hjartastopp. Þau fengu afhenta viðurkenningu á 1-1-2 deginum, sem haldinn var hátíðlegur á Glerártorgi í gær.

Fram kemur í frétt RUV  að þær systur hafi setið saman við tölvuna á venjulegum ágústdegi í fyrra og ætlað að kaupa sér miða á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þá hafi Bríet skyndilega misst meðvitund. Hinrik hringdi í Neyðarlínuna og þegar ljóst var að Bríet andaði ekki færðu þau hana á gólfið til að hefja endurlífgun.

Feðginin segja í samtali við RUV að þau hafi bæði fengið skyndihjálparþjálfun og vitað hvernig ætti að bera sig að en leiðbeiningar Neyðarlínunnar hafi verið þeim haldreipi í þessum hrikalegu aðstæðum. Það hafi skipt öllu máli að neyðarvörður talaði við þau allan tímann.

Innan við fimm mínútur hafi liðið frá því hringt var í Neyðarlínuna þangað til sjúkraflutningamenn voru komnir á staðinn. Lífi Bríetar var bjargað og í dag er hún með bjargráð sem stuðar í henni hjartað ef það fer að slá óeðlilega.

Skilaboð feðginanna eru skýr – allir ættu að kunna skyndihjálp. Þó að fæstir vilja hugsa til þess að þeirra nánustu gætu þurft á skyndihjálp að halda þá veit maður aldrei.