Fara í efni
Fréttir

Hilmar tilnefndur til menntaverðlaunanna

Hilmar Friðjónsson, kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Hilmar Friðjónsson, kennari við Verkmenntaskólans á Akureyri, er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2021, sem verða afhent í næsta mánuði. 

Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum.  Þau eru í þremur aðalflokkum:

  • Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
  • Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Hilmar er einn fimm sem tilnefndir eru í þessum flokki.
  • Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.

Á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun segir að Hilmar sé tilnefndur fyrir að þróa nýjar og óhefðbundnar leiðir til að auðvelda nemendum stærðfræðinám. „Sérstaka athygli vekja stutt myndbönd sem Hilmar hefur unnið og útskýra ýmsa þætti í stærðfræðinni í tali og myndum. Alls hefur hann útbúið um 700 slík myndbönd og hafa allir nemendur við VMA aðgang að þeim á innra vef skólans,“ segir þar. 

„Fyrirmynd Hilmars að þessu leyti er Bandaríkjamaðurinn Salman Khan sem vakið hefur heimsathygli fyrir myndbönd sín og starf sitt á kahnacademy.org. Hilmar er vinsæll bæði meðal nemenda og samstarfsmanna, þykir einstaklega hjálpsamur og áhugasamur um að hjálpa nemendum sem eiga erfitt uppdráttar.“

Á vefnum er birt þessi umsögn sem fylgdi tilnefningu:

Hilmar er mikill áhugamaður um margmiðlun sem hann hefur nýtt mikið í störfum sínum bæði í kennslunni og með því að miðla til nemenda og samstarfsfólks. Hann hefur alla tíð náð einstaklega vel til nemenda sem standa höllum fæti í námi og sérstaklega í stærðfræði. Hann nálgast nemendur með fagmennsku, út frá styrkleikum þeirra með fjölbreyttum kennsluaðferðum og umhyggju. Hann er frábær samstarfsfélagi, alltaf tilbúinn að hjálpa og miðla til allra. Hann hefur verið leiðandi í notkun upplýsingatækni í kennslu við skólann og komið með nýjar nálganir og hugmyndir inn í starfsmannahópinn. Alltaf tilbúin til að leiðbeina og prófa nýja hluti. Hann setur sig auðveldlega í spor nemenda, eflir þá út frá styrkleikum þeirra og nær þannig árangri með nemendum. Í stærðfræðikennslu hefur hann einstakt lag á að hvetja nemendur áfram til árangurs og hafa margir nemendur þakkað honum fyrir að hafa komið sér áfram í náminu og að skilja stærðfræði.

  • Að Íslensku menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.