Helga Ösp fyrst kvenna ráðin skógarvörður
Helga Ösp Jónsdóttir tók nýlega við stöðu skógarvarðar á Norðurlandi með aðsetur í Vaglaskógi og er hún þar með fyrsta konan sem gegnir stöðu skógarvarðar hjá opinberri skógræktarstofnun á Íslandi.
Helga Ösp er menntuð sem plöntusjúkdómafræðingur og starfaði að þeim málum hjá Landi og skógi þar til hún tók við starfi skógarvarðar. Á heimasíðu Lands og skógar segist nýi skógarvörðurinn ekki ætla að búa í Vaglaskógi að svo stöddu heldur áfram á Akureyri. „Kannski flyt ég einhvern tíma í skóginn,“ segir Helga Ösp. Komu Helgu í Vaglaskóg var formlega fagnað í nýjum eldaskála í skóginum sem var þá vígður og Rúnar Ísleifsson kvaddur og honum þökkuð vel unnin störf í embætti skógarvarðar.

Mynd er tekin innan úr eldaskálanum í Vaglaskógi. Skálinn hefur verið nokkur ár í vinnslu en það eru Arkís arkitektar sem eiga heiðurinn af hönnuninni sem bar sigur úr býtum í samkeppni um áningarstaði í þjóðskógunum sem haldin var 2013. Mynd: Land og skógur.