Fara í efni
Fréttir

Heimildarmynd í Hofi um villta laxinn

Akureyringum og nærsveitungum er boðið á sýningu merkilegrar kvikmyndar í menningarhúsinu Hofi í kvöld. Um er að ræða heimildarmyndina Superfish: Salmon, þar sem Emmy- og BAFTA-verðlaunahafinn og sjávarlíffræðingurinn Rick Rosenthal leiðir áhorfendur í gegnum sögu „sem sameinar stórkostlega kvikmyndatöku og vísindalega innsýn“ eins og segir í kynningu.

  • Sýning myndarinnar í Hofi hefst klukkan 19.00, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

„Myndin varpar ljósi á þær áskoranir sem laxinn stendur frammi fyrir og útskýrir hvers vegna framtíð hans skiptir okkur öll máli,“ segir í kynningu á myndinni. „Superfish: Salmon er mögnuð heimildarmynd sem fylgir ótrúlegu ferðalagi villta laxins um ár og höf og sýnir mikilvægi hans fyrir heilbrigði vistkerfa og samfélaga.“

Í kjölfar sýningar fara fram pallborðsumræður þar sem höfundur myndarinnar, Rick Rosenthal, tekur þátt. Aðgangur er ókeypis eins og áður sagði, „en frjáls framlög eru vel þegin. Öll framlög renna til verndar villta laxinum,“ segir í tilkynningu.

  • Hægt er að horfa á stiklu og fræðast nánar um myndina með því að smella HÉR eða á myndina fyrir neðan.