Fara í efni
Fréttir

Haustlitirnir heilla – MYNDIR

Innbærinn skrýddur haustlitunum. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Haustið er tími fyrir fólk sem unnir fjölskrúðugum gróðurlitum. Laufblöðin gulna, berin verða rauð og á góðum degi í góðri birtu með bláan himin og grátt í fjöll verður þetta allt saman að undursamlegu sjónarspili sem gleður augað.

Þorgeir Baldursson, Skapti Hallgrímsson og Haraldur Ingólfsson fönguðu smá hluta af fegurðinni, eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi.