Fara í efni
Fréttir

Haustkyrrðin logn á undan miklum stormi

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Haustfegurðin er alls ráðandi í dag; litadýrðin í algleymingi og kyrrðin með eindæmum, en það mun logn á undan stormi, óvenju miklum stormi og mjög slæmu veðri víða um land á morgun. Viðvaranir, gular og appelsínugular, hafa verið gefnar út fyrir alla landshluta nema Norðurland eystra og Austurland en þó virðist mega gera ráð fyrir leiðindaveðri á annesjum. Veður ætti hins vegar að vera skaplegt á Akureyri og næsta nágrenni þótt spáð sé töluverðri rigningu.

„Rólegheitaveður í dag, hæg suðlæg eða breytileg átt og skúrir, lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi, en lítilsháttar væta þar seinnipartinn. Hiti víða 5 til 10 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands í morgun.

Sjaldan hefur viðrað betur til gönguferða og annarrar útivisvar á Akureyri en nú og þar sem símabann er ekki í gildi í slíkum fimleikatímum er óhjákvæmilegt annað en bregða þeim þarfasta þjóni samtímans á loft með reglulegu millibili. 

Í hugleiðingum veðurfræðings í morgun koma einnig fram eftirfarandi punktar:

  • Á morgun gera spár síðan ráð fyrir að dragi til mikilla tíðinda í veðrinu þegar mjög djúp og kröpp lægð fer yfir landið.
  • Fyrripart dags má búast við austan og norðaustan hvassviðri eða stormi á landinu með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi í flestum landshlutum, en slyddu eða snjókomu til fjalla, einkum fyrir norðan.
  • Síðdegis á morgun á sjálf lægðarmiðjan síðan að ganga inn á austurhluta landsins og því verður sá hluti landsins í svokölluðu svikalogni (litlum vindi) inni í lægðarmiðjunni.

  • Vestan lægðarmiðjunnar er hins vegar norðan vindstrengur af stormstyrk. Með norðanáttinni berst kaldara loft úr norðri og annað kvöld má gera ráð fyrir að snælínan færist niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
  • Þar sem saman fer snjókoma og stormur, þar er stórhríð og því hafa appelsínugular viðvaranir verið gefnar út á þessum svæðum þar sem veðrið verður verst. Í öðrum landshlutum eru viðvaranirnar gular.

  • Spár fram að þessu hafa lítið breyst frá því í gær og eru nokkuð samstíga um stefnu og þróun lægðarinnar, en það ber að hafa í huga að það fylgir oft talsverð óvissa þegar um er að ræða svona ört dýpkandi og hraðfara lægð.
  • Óveðurslægðin fer hratt yfir og verður skv. spám stödd fyrir norðaustan land á fimmtudagsmorgun. Þá verður ennþá hvöss norðvestanátt með snjókomu á Norður- og Austurlandi. Síðan heldur lægðin áfram sinni hraðferð til norðausturs og eftir hádegi á fimmtudag ætti hún að vera að mestu úr sögunni og þá er gert ráð fyrir köldu en skaplegu veðri á landinu.