Fara í efni
Fréttir

Harður árekstur, fleiri slys og eldsvoði

Sjö voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur á Þelamörk undir kvöld, fleiri umferðaróhöpp urðu og eldur kviknaði í útihúsi bæjar í Eyjafjarðarsveit. 
 
„Kannski er það helber hjátrú að föstudagurinn þrettándi sé óheilladagur en svo mikið er víst að sjaldan sjáum við svo mikla ólukku verða á svo stuttum tíma,“ segir á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í kvöld og skyldi engan undra.
 
Svo segir færslu lögreglunnar:
 
  • Um kl 17.30 var tilkynnt um eldsvoða á bæ í Eyjafjarðarsveit, að um væri að ræða eld í útihúsi og að ekki væri vitað hvort einhver væri inni. Lögregla og slökkvilið fóru með forgangi á vettvang. Í ljós kom að eldur hafi kviknað í heyi fyrir utan útihús. Ábúanda tókst að slökkva eldinn að mestu áður en viðbragðsaðilar komu og varð ekki tjón á húsum og engan sakaði.
  • Meðan lögreglumenn voru að störfum á brunavettvangi voru rannsóknarlögreglumenn á leið til Akureyrar frá Varmahlíð, þar sem þeir höfðu verið við störf. Óku þeir þá fram á umferðarslys á Hringveginum við Þelamerkurveg í Hörgárdal. Um var að ræða harðan árekstur, þar sem bifreið var ekið aftan á aðra bifreið í sömu akstursstefnu. 7 aðilar voru fluttir af vettvangi og þar af voru 4 slasaðir, 2 fullorðnir og 2 börn. Sjúkraflutningamenn fluttu alla aðila á Sjúkrahúsið á Akureyri og voru báðar bifreiðarnar óökufærar. Hringveginum var lokað á meðan og umferð vísað um Hörgárdalsveg.
  • Á meðan á vettvangsvinnu við þetta umferðarslys stóð varð umferðaróhapp á Hörgárdalsvegi þar sem bifreið var ekið aftan á aðra bifreið vegna hálku en engin slys urðu á fólki. Önnur bifreiðin varð óökufær en hægt var að aka hinni af vettvangi. Þarna hafði rúta einnig lent út af veginum en hálka og vonsku veður var á vettvangi.
  • Um kl 18:45 var svo tilkynnt um að bifreið hafi verið ekið á ljósastaur á Kjarnagötu á móts við Jaðarstún á Akureyri og ökumaðurinn ekið á brott án þess að kalla til lögreglu eða gera aðrar ráðstafanir. Hans er nú leitað og hvetjum við hann til að gefa sig fram. Við þiggjum gjarnan upplýsingar sem þið kunnið að hafa um málið en þeim er hægt að koma til skila í gegn um 1-1-2.
  • Um kl 19:00 var síðan tilkynnt um fólk í slagsmálum hjá verslunarmiðstöðinni Glerártorgi. Var þar um um að ræða ágreining milli aðila sem endaði með handalögmálum. Lögregla ræddi við fólkið og stillti til friðar og hefur þetta mál ekki frekari eftirmála hjá lögreglu.
  • Stuttu síðar var síðan tilkynnt um árekstur 3 bifreiða á gatnamótum Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis. Þar urðu engin slys á fólki en ágreiningur var um tildrög óhappsins þannig að ef vitni að atvikinu les þessa færslu má það gjarnan gefa sig fram.