Fara í efni
Fréttir

Haraldur Ólafsson rakarameistari látinn

Haraldur Ólafsson rakarameistari á Akureyri er látinn. Hann fæddist á Garðsá í Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði 5. október 1929 og lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 12. september.

Eiginkona Haraldar var Brynja Hermannsdóttir sem lést árið 2003. Þau bjuggu lengst af í Klapparstíg 1 á Akureyri. Börn Haraldar og Brynju eru Hermann, kvæntur Elínu Guðmundsdóttur, Ólafur Örn, kvæntur Sigríði Björnsdóttur og Guðrún María, sem gift er Ólafi Sigurðssyni.

Útför Haraldar fer fram frá Akureyrarkirkju næsta mánudag, 20. september, og hefst klukkan 10.00.