Fara í efni
Fréttir

Haraldur Logi er við störf í Úkraínu

Haraldur Logi Hringsson. Mynd af vef Rauða kross Íslands.

Akureyringurinn Haraldur Logi Hringsson lögreglumaður er farinn til Úkraínu þar sem hann mun starfa með neyðarteymi Alþjóðasambands Rauða krossins (IFRC) vegna aðgerðar í tengslum við stríðið í landinu.

Haraldur Logi mun sinna öryggismálum í tengslum við starfsemi Rauða krossins og verður aðal starfsstöð hans í borginni Vinnytsia, að því er segir á vef Rauða kross Íslands. Vinnytsia er inni í miðju landi.

„Starfið mun meðal annars fela í að veita faglega ráðgjöf í öryggisáhættustjórnun (SRM – Security Risk management), uppfæra viðbragðsáætlanir, umsjón með framkvæmd verklagsreglna og öryggistilkynninga á starfsvæðinu ásamt því að greina öryggis-, pólitískar -, og efnahagslega stöðu á tilteknu svæði,“ segir á vef Rauða krossins.

„Þetta er fyrsta starfsferð Haraldar Loga fyrir Rauða krossinn á alþjóðavettvangi en hann hefur verið á viðbragðslista Rauða krossins á Íslandi í nokkur ár og hlotið viðeigandi þjálfun í tengslum við sína sérhæfingu innan Alþjóða Rauða krossins.

Öllu jafna sinnir Haraldur störfum sem lögreglufulltrúi hjá lögregluembættinu á Norðurlandi eystra. Hann er með BA gráðu í lögreglu- og löggæslufræðum frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Rauði krossinn þakkar lögregluembættinu á Norðurlandi Eystra fyrir veita Haraldi Loga tímabundna lausn frá störfum sínum hjá embættinu og styðja þannig við hjálparstarf Rauða krossins í Úkraínu.“