Fréttir
Handbolti: KA mætir Selfyssingum í kvöld
27.11.2025 kl. 06:30
Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur reynst KA-liðinu afar drjúgur í vetur, svo ekki sé meira sagt. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Annar af tveimur heimaleikjum akureyrskra íþróttaliða þessa vikuna er í KA-heimilinu í kvöld þegar KA tekur á móti liði Selfoss í Olísdeild karla í handknattleik.
KA er í 4. sæti deildarinnar að loknum 11 umerðum, hefur unnið sjö leiki og er með 14 stig. Gestir KA í dag, lið Selfyssinga, eru í næstneðsta sæti deildarinnar með sjö stig.
- Olísdeild karla í handknattleik
KA-heimilið kl. 19
KA - Selfoss
Selfyssingar unnu nokkuð óvæntan sigur á Aftureldingu í síðustu umferð, 29-28 á útivelli, en KA vann Þór á heimavelli, 32-28.
- - -
Leikir næstu daga
- Laugardagur - Olísdeild karla í handknattleik: ÍR - Þór
- Sunnudagur - 1. deild kvenna í körfuknattleik: Vestri - Þór
- Sunnudagur - 1. deild karla í körfuknattleik: Þór - Fjölnir