Akureyrarliðið Hamrarnir er deildarmeistari 5. deildar karla í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Skallagrími úr Borgarnesi í úrslitaleik deildarinnar á Þórsvellinum í gær. Liðin fylgjast að upp um deild því fyrir úrslitaleikinn höfðu þau bæði tryggt sér sæti í 4. deild á næsta tímabili.
Sigurður Donys Sigurðsson, eða Donni eins og hann er kallaður, er þjálfari Hamranna, en hann náðist þó ekki í viðtal strax eftir leik og gat reyndar ekki farið að fagna deildarmeistaratitlinum af krafti strax því hann starfar einnig við þjálfun hjá unglingaráði Þórs og fór beint í leik með 4. flokki eftir sigurleikinn með Hömrunum.
Einbeittir á verkefnið
Donni gaf sér þó tíma í stutt spjall og var að vonum ánægður með árangur sumarsins og bikar í safnið. „Strákarnir voru klárir og fókuseraðir í verkefnið, komnir alla leið í úrslit og eins og ég sagði við strákana fyrir leikinn, það yrði ekkert annað í boði en að klára þennan leik og fá bikarinn heim. Við unnum heimaleiksréttinn og það var bara geðveikt að klára tímabilið með bikar og þeir voru bara geggjaðir, allir.“
Hamrarnir byrjuðu leikinn af krafti og fannst Donna hans lið vera betri aðilinn fyrstu 20 mínúturnar. Hamrarnir skoruðu enda tvö mörk í fyrri hluta fyrri hálfleiks. Tómas Ernir Guðmundsson kom Hömrunum í 1-0 á 17. mínútu og Viðar Guðbjörn Jóhannsson bætti við öðru marki á 23. mínútu. Þegar upp var staðið urðu þetta lokatölur leiksins, 2-0.
- 1-0 - Tómas Ernir Guðmundsson fer framhjá markverði Skallagríms og nær forystunni fyrir Hamrana. Myndir: Ármann Hinrik.




- 2-0 - Viðar Guðbjörn Jóhannsson kemur Hömrunum í 2-0 um miðjan fyrri hálfleikinn og fagnaði með þjálfarateyminu og varamönnum.

„Við duttum svo niður eins og gerist sjálfkrafa í svona leikjum. Þeir komu af meiri krafti inn í seinni hálfleik, komnir með vindinn í bakið. Við vorum kannski að byrja að halda of mikið, í stað þess að halda áfram okkar leik,“ segir Donni.
Aðdragandi leiksins í dag var ekki ákjósanlegur, vandræði með ferðamáta hjá hluta Skallagrímsliðsins og leiknum seinkað um klukkutíma. Donni segir það ekki hafa truflað Hamrana, en telur líklegt að það hafi haft áhrif á gestina. „Þetta truflaði okkur ekki neitt, við vorum bara fókusaðir í því sem við vorum að gera.“
Lið Hamranna: Ævar Breki Ottesen Ævarsson (m), Alex Máni Gærdbo Garðarsson, Óliver Jóhannsson (f), Kjartan Steinn Jónasson, Tómas Veigar Eiríksson, Tómas Ernir Guðmundsson, Gauti Snær Einarsson (Rúnar Freyr Egilsson, 63'), Bjarki Már Hafliðason (Kristófer Príor Jósefsson, 63'), Kári Gunnarsson (Gunnar Þórir Björnsson, 87'), Viðar Guðbjörn Jóhannsson (Gunnþór Andri Björnsson, 87'), Marinó Bjarni Magnason (Guðmundur Kristinn Jónasson, 76').
Uppstígandi í verkefninu undanfarin tvö ár
Donni er ánægður með tímabilið og horfir reyndar lengra aftur, á verkefnið í heild.
„Tímabilið hefur verið frábært og seinustu tvö árin í þessu verkefni með Hömrunum, það hefur verið uppstígandi endalaust hjá okkur. Við erum ekkert hættir. Við erum bara rétt að byrja. Við settumst niður með stjórn og Mikki með mér sem þjálfari og okkur langar að fara ennþá lengra og jafnvel að fara ofar með liðið en í 4. deild. Tímabilið hefur verið stórkostlegt. Strákarnir eiga hrós skilið og allir í kringum liðið. Þetta er ekkert smá erfitt verkefni. Við erum ekki eins stórir og klúbbarnir hér í kring. Það er erfitt fyrir okkur að ná í styrki og leikmenn, sem vilja auðvitað vera í hærri level. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir strákana sem tóku slaginn með okkur og gætu léttilega verið í hærri level. Þeir gerðu þetta rosa vel.“

Mikael Freyr Rúnarsson aðstoðarþjálfari og Sigurður Donys Sigurðsson þjálfari hafa náð góðum árangri með liði Hamranna og færast nú upp um deild. Mynd: Ármann Hinrik.
Aðspurður segir Donni næsta sumar verða erfitt enda er alltaf styrkleikamunur á milli deilda. „Já, klárlega. Þetta er alvöru deild og menn þurfa að vera í betra standi. En ég segi að við höfum unnið deildina á forminu, við erum í hörkustandi og ég held að menn ætli bara að gefa meira í, hver og einn, við í þjálfarateyminu líka og stjórnin.“
Leikmenn á aldrinum 18-42 ára
Akureyri.net heyrði einnig í Gunnari Þóri Björnssyni í aðdraganda leiksins. Gunnar Þórir er framkvæmdastjóri og gjaldkeri Hamranna, stofnandi liðsins og leikmaður þess.
„Við fórum bjartsýnir inn í mótið og markmiðið frá upphafi var alveg skýrt – að fara upp um deild. Okkur fannst við hafa góðan grunn frá því í fyrra, en síðan bættust við góðar styrkingar yfir sumarið og aftur í lok félagaskiptagluggans. Það gaf okkur enn meiri trú á að við gætum náð góðum árangri. Það sem hefur kannski einkennt liðið hvað mest er góð samstaða,“ segir Gunnar Þórir um tímabilið sem nú er afstaðið.

Byrjunarlið Hamranna í úrslitaleiknum. Aftari röð frá vinstri: Ævar Breki Ottesen Ævarsson, Bjarki Már Hafliðason, Alex Máni Gærdbo Garðarsson, Viðar Guðbjörn Jóhannsson, Gauti Snær Einarsson og Óliver Jóhannsson fyrirliði. Fremri röð frá vinstri: Kjartan Steinn Jónasson, Tómas Veigar Eiríksson, Kári Gunnarsson, Marinó Bjarni Magnason og Tómas Ernir Guðmundsson. Mynd: Ármann Hinrik.
Leikmannahópurinn er nokkuð blandaður, strákar úr KA og Þór og aldursbilið er breitt, 18-42 ára, með Gunnar Þóri sjálfan í eldri kantinum, en flestir eru þó undir 26 ára. „Við æfum á KA-vellinum og það er fyrst og fremst mikill áhugi hjá öllum á því að mæta á æfingar, spila fótbolta og hafa gaman af þessu. Samt er ákveðinn metnaður í hópnum. Menn vilja vinna leiki, standa sig vel og ná markmiðunum sem við settum okkur í upphafi. Mér finnst þessi blanda af því að hafa gaman af þessu og vera samt með ákveðinn metnað hafa skilað okkur langt,“ segir Gunnar Þórir.

Gunnar Þórir Björnsson, framkvæmdastjór, gjaldkeri, stofnandi og leikmaður Hamranna, fagnar árangri Hamranna á skemmtilegan hátt að sigrinum loknum í gær. Mynd: Ármann Hinrik.
„Undanúrslitaeinvígið gegn Smára var svo algjör barátta. Við vissum að það yrði erfitt einvígi og það fór alla leið í framlengingu, en sem betur fer náðum við að klára það og tryggja okkur í úrslitaleikinn. Það var mjög góð tilfinning og sýnir líka karakterinn í hópnum,“ sagði Gunnar Þórir og sagði liðið einfaldlega fara í úrslitaleikinn með það sama hugarfar og einkennt hefur liðið í allt sumar, að hafa gaman af þessu, leggja allt í leikinn og auðvitað að reyna að vinna.
Spennandi úrslitakeppni að baki
Fimmta deildin er sú neðsta af formlegum deildum Íslandsmótsins, en þar fyrir neðan er þó svokölluð utandeild. Fimmta deildin var spiluð í tveimur riðlum og unnu Hamrarnir og Skallagrímur hvort sinn riðil. Hamrarnir mættu Smára, liðinu í 2. sæti hins riðilsins, í undanúrslitum og höfðu betur. Fyrri leikurinn endaði með 2-2 jafntefli, en framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit í seinni leiknum, þar sem staðan var 1-1 að loknum 90 mínútum, en Hamrarnir unnu að lokum 3-2 eftir framlengingu. Skallagrímur fór svipaða leið, tapaði reyndar fyrri leiknum gegn Stokkseyri 2-1, en vann þann seinni eftir framlengingu, 4-1. Hamrarnir og Skallagrímur tryggðu sér þannig bæði sæti í 4. deildinni á næsta tímabili og mættust í hreinum úrslitaleik deildarinnar í dag, sem Hamrarnir unnu 2-0, eins og áður sagði.
Fjórða deildin er með öðru fyrirkomulagi, ein tíu liða deild þar sem spiluð er tvöföld umferð. ÍH og Hafnir féllu úr 4. deildinni, en Hamrarnir og Skallagrímur taka sæti þeirra. Aðrir mótherjar Hamranna í 4. deildinni næsta sumar verða KÁ, Árbær, Árborg, Vængir Júpíters, Elliði, KFR, Úlfarnir og Álafoss. KÁ og Árbær féllu úr 3. deildinni.
- - -
Ármann Hinrik mætti á leikinn með myndavélina og má sjá hluta af afrakstrinum í albúminu hér að neðan. Jafnvel von á meiru og verður þá bætt inn í sama albúmið.