Fara í efni
Fréttir

Hálf milljón í verðlaun fyrir góða hugmynd

Hefur þú fengið góða hugmynd sem þú skilur ekki af hverju enginn er að framkvæma? Hvernig væri að prófa að framkvæma lausnina sjálf/ur?

Þannig  spyrja stjórnendur verkefnisins Norðanáttar, sem leita að áhugaverðum nýsköpunarhugmyndum á sviði matar, vatns og orku til að taka þátt í nýsköpunarkeppninni Norðansprotanum í næstu viku, dagana 16.- 20. maí. Umsækjendur geta verið einir eða verið hluti af teymi sem langar til þess að leggja sitt af mörkum til þess að láta hugmyndina verða að veruleika. Skráningin er opin fyrir alla.

Hægt er að skrá sig til leiks með því að fylla út skráningarform hér fyrir miðnætti mánudaginn 16. maí. Það kostar ekkert að skrá sig.

Í kjölfarið fær fólk tölvupóst með nánari upplýsingum m.a. upplýsingar um gerð og skil á einblöðungi sem lýsir hugmyndinni nánar. Skilafrestur á einblöðungi er til miðnættis, þriðjudginn 17. maí.

Í framhaldinu fá 5 til 8 umsækjendur tækifæri til að kynna hugmyndina fyrir dómnefnd og gestum á lokaviðburðinum sem fer fram föstudaginn 20. maí frá klukkan 16.00 til 18.00 í Háskólanum á Akureyri.

Sigurvegari keppninnar hlýtur titilinn Norðansprotinn 2022 og 500.000 kr í verðlaunafé.

Nýsköpunarvikan 16. - 20. maí – dagskrá, skv. tilkynningu:

  • Mánudagur - Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti
  • Þriðjudagur - Skil á einblöðungum
  • Miðvikudagur - Tilkynnt um 5 til 8 teymi sem fá tækifæri til að kynna á lokaviðburðinum
  • Fimmtudagur 11:30-12:30 - Pitch þjálfun á netinu
  • Föstudagur 11:30-12:30 - General prufa
  • Föstudagur 16:00-18:00 - Lokaviðburður, kynningar og verðlaunaafhending