Fara í efni
Fréttir

Hægt að sækja um samfélagsstyrki KPMG

KPMG hefur opnað fyrir umsóknir um samfélagsstyrki fyrir árið 2027. Með nýju fyrirkomulagi vill fyrirtækið beina stuðningi að verkefnum sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og stuðla að uppbyggingu á landsbyggðinni.

Í fréttatilkynningu frá KPMG segir að með breyttri styrktarstefnu verði lögð meiri áhersla á samfélagsleg áhrif verkefna, gagnsæi í umsóknarferli og skýrari forgangsröðun. Þá hyggst KPMG birta árlegt yfirlit yfir þau verkefni sem hljóta styrki og þann árangur sem stuðningurinn skilar. Styrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði atvinnulífs, menntunar, nýsköpunar, sjálfbærni og samfélagslegrar velferðar.

Helgi Níelsson, meðeigandi KPMG á Norðurlandi.

„Norðurland er fullt af fólki sem tekur frumkvæði, leggur hart að sér og vinnur að verkefnum sem skipta samfélagið máli. Samfélagsstyrkirnir eru ein leið fyrir okkur til að styðja við þessa öflugu starfsemi og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins,“ segir Helgi Níelsson, meðeigandi KPMG á Norðurlandi.

Umsóknartímabilið verður að jafnaði í október og nóvember ár hvert, þannig að félagasamtök og aðrir sem standa að samfélagsverkefnum hafi reglulegt tækifæri til að sækja um.

Nánari upplýsingar um styrkina, skilyrði og umsóknarfyrirkomulag má finna á vefsíðu KPMG.