Fara í efni
Fréttir

GSÍ verðlaunar bæinn og golfklúbbinn

Sjálfbærniverðlaun til GA. Frá vinstri: Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands (GSÍ), Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar (GA), Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ. Mynd af vef GSÍ

Golfklúbbur Akureyrar (GA) hlýtur sjálfbærniverðlaun Golfsambands Íslands (GSÍ) 2026. Þetta var tilkynnt á formannafundi GSÍ sem haldinn var í húsakynnum GA að Jaðri á laugardaginn og við sama tækifæri hlaut Akureyrarbær heiðursskjal golfsambandsins. 

Sjálfbærniverðlaun GSÍ „eru veitt klúbbi sem sýnir metnaðarfulla og ábyrga nálgun í rekstri, vallarumhirðu, félagsstarfi og uppbyggingu íþróttarinnar,“ segir á vef Golfsambands Íslands og þar segir um heiðursskjalið að sú viðurkenning sé veitt sveitarfélagi „sem hefur skarað fram úr með stuðningi sínum við golfhreyfinguna á Íslandi.“

„GA hefur á undanförnum árum tengt saman umhverfislega og samfélagslega ábyrgð, nýsköpun í vallarumhirðu og öfluga uppbyggingu aðstöðu og íþróttastarfs. Klúbburinn skapar tækifæri fyrir fólk á öllum aldri, af öllum kynjum og með ólíka getu og gegnir mikilvægu hlutverki í eflingu golfs á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu á vef Golfsambands Íslands.

Í fararbroddi í sjálfbærnistarfi

Þar segir að GA hafi verið í fararbroddi í sjálfbærnistarfi golfhreyfingarinnar, tekið þátt í gagnaverkefnum GSÍ og hlotið GEO-vottun sem staðfesti ábyrga starfshætti samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum. Á árinu 2026 efldi GSÍ sjálfbærnisýn sína með samstarfi við GEO Foundation og innleiðingu OnCourse-kerfisins.

„Meðal þess sem lagt er til grundvallar viðurkenningunni eru umbætur í vallarumhirðu á Jaðarsvelli. Notkun slátturóbóta hefur bætt gæði sláttar, dregið úr eldsneytisnotkun og minnkað hávaða og losun. Uppistöðulón fyrir vökvun stuðlar að ábyrgri vatnsnotkun og endurnýting véla og aðfanga er hluti af daglegum rekstri klúbbsins,“ segir á vef GSÍ.

Akureyrarbær fær heiðursskjal. Frá vinstri: Jón Steindór Árnason, gjaldkeri GSÍ, Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ, Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi á Akureyri, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar.

Uppbygging inniaðstöðunnar á Jaðri vegur einnig þungt þegar kemur að sjálfbærniverðlaununum, segir á vef GSÍ. „Þar eru átta Trackman-hermar, pútt- og vippaðstaða sem gera kylfingum á öllum aldri kleift að stunda íþróttina allt árið. Í rökstuðningi valsins er sérstaklega tekið fram að sjálfboðaliðastarfið við uppbygginguna sýni vel þann kraft sem búi í félaginu og nærsamfélaginu á Akureyri.“

Þá er öflugt ungmennastarf GA dregið fram, ásamt markvissu starfi að nýliðun. „Ungir kylfingar klúbbsins náðu góðum árangri á árinu 2026, ekki síst ungar stúlkur sem hafa orðið sýnilegar fyrirmyndir fyrir næstu kynslóð. Klúbburinn á fulltrúa í landsliðum í ungmenna- og fullorðinsflokkum og inniaðstaðan hefur nýst til sameiginlegra landsliðsæfinga. Golfskóli GA auðveldar jafnframt nýjum iðkendum fyrstu skrefin og styður við áframhaldandi þátttöku.

Að baki árangrinum stendur samstillt starf þjálfara, stjórnenda, starfsfólks og sjálfboðaliða. Með viðurkenningunni er því starfi fagnað og vakin athygli á því hvernig sjálfbærni getur verið hluti af daglegum rekstri golfklúbbs, uppbyggingu aðstöðu og þjónustu við nærsamfélagið.“

Skarar fram úr með stuðningi við hreyfinguna

Heimir Örn Árnason bæjarfulltrúi tók við heiðursskjalinu fyrir hönd Akureyrarbæjars, en viðurkenningin er veitt sveitarfélagi sem hefur skarað fram úr með stuðningi sínum við golfhreyfinguna á Íslandi, að því er segir í tilkynningu Golfsambandsins.

„Með afhendingunni þakkar GSÍ Akureyrarbæ fyrir áratuga farsælt samstarf og mikilvægt framlag til uppbyggingar golfíþróttarinnar á Norðurlandi. Bærinn hefur með markvissri stefnu og fjárfestingum skapað aðstæður sem styðja við golfiðkun fólks á öllum aldri.“

Í ræðu á fundinum var sérstaklega vakin athygli á umfangsmiklum endurbótum á Jaðarsvelli sem ná aftur til ársins 2007. Þar má nefna endurbyggingu flata, endurbætur á teigum og fjárfestingu í vökvunarkerfi sem stuðlar að auknum gæðum og rekstraröryggi.

„Þá hefur framlag bæjarins til uppbyggingar Klappa, æfingasvæðis klúbbsins utandyra, reynst kylfingum mikilvægt. Svæðið þjónar bæði bæjarbúum og kylfingum úr nærliggjandi sveitarfélögum og hefur aukið aðgengi að æfingum og þjálfun.

Viðbygging við klúbbhúsið og uppbygging herma- og inniaðstöðu hafa gert fólki kleift að stunda golf á Jaðri allt árið. Aðstaðan er meðal þeirra bestu á landinu og hefur íslenska landsliðið í golfi gert sér ferð norður undanfarin tvö ár til að æfa við þessar frábæru aðstæður.

Með viðurkenningunni er bænum einnig þakkað fyrir þá framsýni og stuðning sem hefur styrkt íþróttalíf á svæðinu. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“