Fara í efni
Fréttir

Grófin spyr: Ert þú með lausa skrúfu?

Lausa skrúfan er vitundarvakningar- og fjáröflunarverkefni á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Verkefnið varð til út frá persónulegri reynslu hugmyndasmiðsins Sigurðar Gísla Gunnlaugssonar og byggir á því að opna samtalið um andlega heilsu, rjúfa þögn og draga úr fordómum gagnvart andlegum veikindum. Markmiðið er að hvetja fólk til að hugsa vel um eigin geðheilsu, leita sér aðstoðar þegar þörf krefur og þekkja þau úrræði sem standa til boða í samfélaginu.

Febrúar er tileinkaður Lausu skrúfunni, en sá mánuður er oft dimmur og krefjandi og því mikilvægt að huga sérstaklega að andlegri vellíðan. Verkefnið þjónar einnig sem vegvísir fyrir fólk norðan heiða, bæði fyrir þau sem eru að glíma við andlega vanlíðan og þau sem vilja stunda geðrækt meðal jafningja. Samhliða vitundarvakningunni er safnað fé til að styðja við starfsemi Grófarinnar Geðræktar, sem rekur opna og gjaldfrjálsa geðrækt á Akureyri fyrir 18 ára og eldri.

Skrúfur seldar á Glerártorgi

Söluvaran er box með lausri skrúfu og tappa, sem táknar mikilvægi þess að huga að sjálfum sér, ásamt QR-kóða sem leiðir fólk að upplýsingum, fræðslu og bjargráðum tengdum geðheilbrigði.

  • Sala fer fram á Glerártorgi á Akureyri á morgun, föstudaginn 13. febrúar frá kl. 14-18 og dagana 26., 27. (kl. 14-18) og 28. febrúar (kl. 12-17).

Einnig er hægt er að leggja málstaðnum lið með því að styrkja félagið með frjálsum framlögum eða með því að gerast bakhjarl.

Þátttakendur úr Grófinni Geðrækt verða á staðnum til að kynna starfið, ræða geðheilbrigðismál og benda á hvar hægt er að fá stuðning. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Lausu skrúfunnar.