Fréttir
														
Grímuskylda á ný á sjúkrahúsinu
											
									
		13.12.2022 kl. 13:50
		
							
				
			
			
		
											 
									Kórónaveiran hefur gert vart við sig í töluverðum mæli á nýjan leik undanfarið. Af þeim sökum hefur verið gripið til grímuskyldu á ný á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Á vef stofnunarinnar segir:
Vegna aukningu á fjölda inniliggjandi sjúklinga og veikinda starfsmanna með COVID-19 verður því miður að bregðast við með eftirfarandi hertum reglum tímabundið:
- Grímuskylda er á alla heimsóknargesti.
- Einn gestur leyfður í heimsókn í einu og gestir beðnir að virða heimsóknartímann.
- Grímuskylda á alla starfsmenn við umönnun.
- Reglurnar verða endurskoðaðar þann 19. desember.
 
																 
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                            