Grátt niður í miðjar hlíðar ofan Akureyrar
Tólfti september er ekkert sérstaklega þekktur sem fyrsti dagur haustsins, frekar sem dulnefni sem dægurlagahöfundurinn og listmálarinn Freymóður Jóhannsson notaði fyrir margt löngu.
Í dag er tólfti september og engu að síður heldur haustlegt útsýni til fjalla. Hlíðarfjall, Súlur, Vaðlaheiði og fleiri fjöll grá og hvít á að líta, eins og meðfylgjandi myndir Snæfríðar Ingadóttur bera með sér. Ekki er þó víst að hvíti liturinn haldi lengi, að minnsta kosti ekki tími til að taka fram skíðin.

Það væru líklega ýkjur að segja að allt sé í hers höndum þótt gráni í fjöll. Súlur vaka yfir Akureyri og eru byrjaðar að grána. Mynd: Snæfríður Ingadóttir.
Veðurspá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir vestan- og norðvestanátt í dag, 10-18 m/sek., rigningu hér norðanlands og slyddu til fjalla. Smám saman dregur úr vætu norðanlands í kvöld. Hiti verður á bilinu 4-12 stig, mildast syðst. Á morgun verður vaxandi suðaustanátt og fer að rigna, vindur á bilinu 8-15 m/sek. síðdegis, en hægari vindur og lengst af þurrt á Norðausturlandi.
Hugleiðingar veðurfræðings með spánni hljóma svona: „Það er spáð lægðagangi næstu daga, vinda- og vætusömu veðri með köflum. Sem sagt umhleypingum. Lægð dagsins dælir til okkar svölu lofti úr norðri með rigningu norðanlands. Á morgun hlýnar heldur með suðaustanátt og þá rignir á Suður- og Vesturlandi. Á mánudag hallar hann sér aftur í norðrið með smá vætu norðaustantil, en á þriðjudag verðum við líklega á milli lægða og þá ætti að rofa víða til. Á miðvikudag er síðan búist við suðaustan- og austanátt með talsverðri rigningu.“

Útsýni yfir í Vaðlaheiði er ekkert sérstakt í dag, en þó sést vel að þar er líka orðið grátt niður í miðjar hlíðar. Mynd: Snæfríður Ingadóttir.