Fara í efni
Fréttir

Götum lokað í miðbæ Akureyrar um helgina

Akureyrarvaka hefst í dag, föstudag, og stendur til sunnudags. Búist er við miklu fjölmenni í miðbænum sem leiðir óhjákvæmilega til þess að loka þarf nokkrum götum tímabundið, að því er segir á vef sveitarfélagsins.

Rautt á myndinni – Listagilið og göngugatan verða lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 11 í dag, föstudag, til hádegis sunnudaginn 28. ágúst. Það á einnig við um göturnar næst Ráðhústorgi, hluta Skipagötu, Strandgötu og Túngötu.

Blátt á myndinni – Vegna Draugaslóðar í Innbænum verða Spítalavegurinn, Lækjargata, Aðalstræti og Hafnarstræti sunnan gatnamóta við Aðalstræti, lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 22 til miðnættis föstudagskvöldið 26. ágúst en þó geta íbúar ekið um Lækjargötu og hluta Hafnarstrætis austur af Aðalstræti.

Grænt á myndinni – Vegna tónleikahalds laugardagskvöldið 27. ágúst teygist lokunin í Listagilinu upp að gömlu kartöflugeymslunni (Kollgátu) og upp Eyrarlandsveg að gatnamótum við Þingvallastræti en íbúar mega þó aka um hluta Eyrarlandsvegar.

Bílastæði eru meðal annars við:

  • Menningarhúsið Hof
  • Ráðhúsið
  • Skipagötu
  • Hofsbót

Almenningssalerni verða á eftirtöldum stöðum:

  • Menningarhúsið Hof (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Bílastæði við Skipagötu (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Listasafnið á Akureyri (aðgengi fyrir fatlaða)

Á vef sveitarfélagsins segir einnig:

  • Vakin er athygli á því að óheimilt er að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku.
  • Umferð dróna er bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.