Fara í efni
Fréttir

Götulokanir í miðbæ um helgina

Lituðu svæðin sýna þá hluta Túngötu, Strandgötu og Skipagötu sem er lokað um helgina. Mynd: akureyri.is.

Akureyrarbær hefur tilkynnt um tímabundnar lokanir gatna í miðbænum dagana 12.-14. júní.

Vegna fjölbreyttrar dagskrár í miðbænum um helgina verður þremur götum lokað að hluta.

  • Túngata - frá Bankastíg að Strandgötu
  • Strandgata - milli Ráðhústorgs og Geislagötu
  • Skipagata - milli Ráðhústorgs og Hofsbótar

Ofantaldar götur verða lokaðar fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá kl. 16 föstudaginn 12. júní til kl. 23 sunnudaginn 14. júní.