Fara í efni
Fréttir

Göngugatan stendur undir nafni hluta sumars

Ljósmynd: Bjarki Freyr Ingólfsson

Göngugatan í miðbæ Akureyrar verður lokuð fyrir bílaumferð frá klukkan 11.00 til 19.00 alla daga í júlí. Í ágúst stendur göngugatan einnig undir nafni á sama tíma, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga.

Eins og heimamenn vita ræðir þarna um Hafnarstræti, kaflann milli Kaupvangsstrætis og Ráðhústorgs.

Hér má sjá upplýsingar um aðrar tímabundnar lokanir, meðal annars lokun Listagils vegna listviðburða og lokun gatna í miðbæ Akureyrar um verslunarmannahelgina og á Akureyrarvöku.

„Megintilgangur þess að takmarka umferð slíkra ökutækja er að auka öryggi gangandi vegfarenda ásamt því að efla bæjarbrag og vera hvatning fyrir íbúa og gesti að ganga og njóta útiveru,“ segir á vef Akureyrarbæjar.