Gömul sæti úr Boeing 747 þotu ruku út

Þegar flugmaðurinn Kristján Þór Kristjánsson setti inn auglýsingu á Facebook fyrir helgi fyrir hönd Flugskóla Akureyrar þar sem hann bauð gömul flugvélasæti úr Boeing 747 þotu gefins átti hann ekki von á neinum sérstökum viðbrögðum. Áhuginn lét hins vegar ekki á sér standa og ruku sætin út á augabragði.
Alls var um að ræða 18 sæti í níu sætasettum. Sætin voru í flugskýli 7 á Akureyrarflugvelli sem var lengi í eigu Arngríms Jóhannssonar, stofnanda Air Atlanta. Kristján veit í raun ekki meira um sögu þeirra annað en að þau eru úr Boeing 747 vél sem var líklega í eigu Atlanta. Sætin eru hin gerðarlegustu enda um að ræða „buisness-class“ sæti og freistuðu þau því margra.
Skemmtileg stemming í iðnaðarbilum
Flugskóli Akureyrar er þessa dagana að flytja starfsemi sína úr skýli 13 yfir í skýli 7 og voru flugsætin meðal þess fyrsta sem þurfti að fjarlægja til að gera rýmið klárt fyrir starfsemi skólans. Ég ætlaði fyrst bara að henda sætunum en ákvað svo að prófa að auglýsa þau gefins. Áhuginn kom skemmtilega á óvart,“ segir Kristján en færri fengu sæti en vildu. Aðspurður um það hver fékk sætin segir Kristján að þau hafi farið til nokkurra mismunandi aðila en honum hafi heyrst á flestum þeirra að til stæði að koma sætunum fyrir í iðnaðarbilum eða bílskúrum til að skapa þar skemmtilega stemmingu.
Töff sæti sem marga langaði í. Sætin prýða nú einhver iðnaðarbil á Akureyri.