Fara í efni
Fréttir

Gömlu búðinni breytt í félagsheimili EBAK?

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Skoðað hefur verið hvort hægt sé að breyta gömlu versluninni í Byggðavegi 98 í félagsheimili fyrir Félag eldri borgara á Akureyri (EBAK). Fleiri möguleikar eru í skoðun en þessi sá eini sem nefndur er í fréttabréfi EBAK sem sent var félagsmönnum í dag.

Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) hefur tekið þá afstöðu að félagið þurfi eigið félagsheimili, „en sé ekki sett sem viðhengi við aðra starfsemi bæjarins,“ segir í fréttabréfinu. „Þessu hefur verið vel tekið af nýkjörnum bæjarfulltrúum og þetta sagt vera forgangsmál,“ segir þar, en tekið fram að samstarf við félagsmiðstöðina Birtu sé mjög gott. EBAK og Birta, önnur tveggja félagsmiðstöðva bæjarins fyrir 18 ára og eldri, eru til húsa á sama stað við Bugðusíðu.

3150 félagar – aðstaðan sprungin

Umræddur hluti fréttabréfsins er svohljóðandi í heild:

Eins og margoft hefur komið fram er aðstaða félagsins í Bugðusíðunni löngu sprungin. Félögum fjölgar stöðugt og eru félagar nú 3150. Eins og félagsmenn vita hefur lengi verið leitað framtíðarlausnar á félagsaðstöðunni og ýmsar hugmyndir verið uppi á borðinu. Nú hefur stjórn tekið þá afstöðu að eðlilegt og sjálfsagt sé að svo öflugt og fjölmennt félag sem EBAK þurfi eigið félagsheimili, en sé ekki sett sem viðhengi við aðra starfsemi bæjarins. Þessu hefur verið vel tekið af nýkjörnum bæjarfulltrúum og þetta sagt vera forgangsmál. Enn skal ítrekað að samstarfið við félagsmiðstöðina Birtu er mjög gott.

Í þessu samhengi hefur verið skoðað hvort hægt sé að breyta gömlu búðinni að Byggðavegi 98 í félagsheimili og er það í skoðun, ásamt fleiri möguleikum.

Verslun í rúm 60 ár

Það var Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri (KEA) sem byggði húsið á horni Byggðavegar og Hrafnagilsstrætis og hóf þar verslunarrekstur árið 1964. Kjörbúð KEA var í húsinu í áratugi en verslanir undir öðrum nöfnum eftir að KEA hætti slíkri starfsemi. Krambúðin var í húsnæðinu síðustu árin, allt þar til henni var lokað í september á síðasta ári. Síðan hefur húsnæðið staðið autt.

Krambúðin var rekin í Byggðavegi 98 í nokkur ár þar til starfseminni var hætt síðastliðið haust. Húsnæðið hefur staðið autt síðan.