Fara í efni
Fréttir

GLEÐILEGT SUMAR!

Mynd: Þorgeir Baldursson

Veðrið lék við Akureyringa og nærsveitunga í gær, á síðasta degi vetrar. Sólin var í aðalhlutverki, himininn heiður og blár og logn í stíl, og hitinn fór í rúmlega 19 gráður sem er það mesta sem mælst hefur hérlendis á árinu. Mikill fjöldi fólks spókaði sig í bænum eins og nærri má geta, ísinn rann úr vélum daginn langan og börnin léku við hvurn sinn fingur, meðal annars þessar stelpur í miðbænum.

Akureyri.net óskar landsmönnum gleðilegs sumar með þökk fyrir veturinn.