Fara í efni
Fréttir

Gleðilegt nýtt ár – takk fyrir 2021!

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyri.net óskar lesendum sínum gleðilegs nýs árs og sendir um leið innilegar þakkir fyrir árið sem var að kveðja.

2021 var fyrsta heila starfsár Akureyri.net síðan vefmiðillinn var endurvakinn af nýjum eigendum í nóvember 2020. Viðtökur voru afar góðar; bæjarbúar, Akureyringar búsettir annars staðar og aðrir áhugamenn um bæinn fallega við fjörðinn, tóku miðlinum fagnandi. Lestur var strax mikill og hefur aukist jafnt og þétt allar götur síðan – nokkur þúsund manns lesa Akureyri.net á hverjum degi.

Leitast er við að fjalla sem mest og best um hvaðeina í akureyrsku mannlífi. Miðillinn segir allar almennar fréttir, fjallar um íþróttir, menningu og fjölbreytt mannlíf á margvíslegan og myndrænan hátt. Slagorðið Oftast sólarmegin féll augljóslega í góðan jarðveg, lesendur hafa lýst ánægju með efnistök og hvatt undirritaðan til dáða. Þeir hafa verið duglegir við að benda á áhugavert efni af ýmsu tagi og ástæða er til þess að hvetja fólk til að halda því áfram.

Best er að senda ábendingar um efni á netfangið skapti@akureyri.net eða með því að hringja í síma 669-1114.

Áfram Akureyri!

Bestu kveðjur, 

Skapti Hallgrímsson
ritstjóri Akureyri.net