Fara í efni
Fréttir

GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ!

Frá samkomu í Lystigarðinum 17. júní á síðasta ári. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Til hamingju með þjóðhátíðardaginn! Í dag eru 78 ár síðan lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum við Öxará, árið 1944.

Hátíðarhöldin á Akureyri 17. júní hefjast með því að blómabíllinn keyrir um hverfi bæjarins frá kl. 11 árdegis, að því er segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Að öðru leyti er dagskrá í tilefni dagsins sem hér segir:

  • Kl. 12.45 leggur skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld hefjast skömmu eftir klukkan eitt.
  • Í Lystigarðinum verður fánahylling og lúðrasveitin leikur Rís þú Íslands unga merki. Að því búnu flytur séra Svavar Alfreð Jónsson bænargjörð og blessun, félagar úr Kammerkór Norðurlands syngja þjóðsönginn og fjallkonan ávarpar gesti garðsins en hún er að þessu sinni Hildur Lilja Jónsdóttir nýstúdent frá MA. Að loknu ávarpi bæjarstjórans, Ásthildar Sturludóttur, verður haldið niður á Eyrarlandsveg þar sem lögregla, lúðrasveit og skátar stilla sér upp í skrúðgöngu sem fer síðan niður Spítalaveg og suður Aðalstræti að Minjasafninu.
  • Fjölskylduskemmtun verður haldin við Minjasafnið frá kl. 14-16. Þar verður skátatívolí, hoppukastalar, andlitsmálun og kassaklifur. Dansstúdíó Alice sýnir dansatriði og boðið verður upp á tónlistarflutning með Magna Ásgeirssyni, Röggu Rix og 17. júní bandinu. Skátar verða með sölutjald við Aðalstrætið og ókeypis verður á öll söfnin í Innbænum.
  • Frá kl. 20.30-23.30 verða ýmsar tónlistaruppákomur í miðbænum í samstarfi við veitingahús og bari. Þar stíga meðal annars á stokk Birkir Blær, Kristján Edelstein og félagar, rapparinn ST. PETE, Ágúst Brynjars, Jon Faerber og Hristo. Sölutjöld frá skátum verða á Ráðhústorgi og þar verður einnig 17. júní bandið frá kl. 22.45 sem tekur á móti nýstúdentum á torginu með leik og söng klukkan rúmlega ellefu. Stúdentarnir stíga sinn dans við undirleik bandsins og syngja klassíska MA-sönga eins og vera ber.