Fara í efni
Fréttir

Glatvarmi nýttur og þjónustuhús reist

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth Myndir: Axel Þórhallsson

Framkvæmdum við 16 milljarða króna stækkun gagnavers atNorth á Akureyri miðar vel og er fyrri áfangi nú tilbúinn í rekstur, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Greint var frá því í dag að samhliða stækkun versins verði reist þjónustuhús fyrir ört stækkandi hóp starfsmanna félagsins á Akureyri og í dag var einnig undirritaður samningur fyrirtækisins við Akureyrarbæ um nýtingu glatvarma frá gagnaverinu til samfélagsverkefna í bænum.

Glatvarmi frá gagnaverinu verður m.a. notaður til upphitunar á nýju gróðurhúsi sem reist verður og rekið á samfélagslegum forsendum, eins og það er orðað.

  • Frétt Akureyri.net í nóvember á síðasta ári um glatvarmann:

Stækka gagnaverin og heimta glatvarma

„Auk bæjarins og atNorth koma Ferro Zink og Gróðrarstöð Akureyrar að verkefninu, en markmiðið er m.a. að skapa lærdómsumhverfi til vistvænnar ræktunar fyrir nemendur á grunn- og framhaldsskólastigi á Akureyri. Vonir standa til að gróðurhúsið verði tilbúið til notkunar strax í haust og ungir Akureyringar fái þá tækifæri til að kynnast sjálfbærri matvælaframleiðslu og betri orkunýtingu í verki,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ og tNorth.

Akureyri verði leiðandi

Atvinnuþróunarfélagið Eimur leiddi samningsgerðina varðandi nýtingu glatvarmans fyrir hönd bæjarins, en Eimur er samstarfsverkefni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur. Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.

„Við leggjum mikla áherslu á að Akureyri verði leiðandi í orkunýtingu og sjálfbærni,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. „Þetta samstarf við atNorth og Eim er lykilskref í þeirri vegferð og þeir möguleikar sem fylgja samkomulagi um nýtingu glatvarma frá gagnaverinu eru afar mikilvægir fyrir bæjarfélagið. Sá samningur sem undirritaður var í dag er í takti við þær væntingar sem við höfðum um áhrif þeirra innviðaframkvæmda sem ráðist var í til að tryggja raforkuflutning inn á svæðið.“

Vonand aðeins fyrsta skrefið

„Þetta verkefni er mjög spennandi og vonandi aðeins fyrsta skrefið af mörgum í þeirri viðleitni að virkja ónýttar auðlindir til raunverulegrar verðmætasköpunar á svæðinu. Samningurinn er einstakur og sýnir glögglega hvað er mögulegt þegar sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki vinna saman að nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærni,“ segir Karen Mist Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá Eimi.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth ásamt starfsfólki fyrirtækisins og Heimi Erni Árnasyni, formanni bæjarráðs Akureyrar, eftir að skrifað var undir samning um nýtingu glatvarma frá gagnaverinu.

Þjónustuhúsið sem nefnt var í upphafi verður vestan við núverandi byggingar á athafnasvæði atNorth og er ráðgert að húsið verði tekið í notkun á næsta ári. „Umsvifin á Akureyri hafa aukist hröðum skrefum og ljóst að við þurfum að reisa nýja þjónustubyggingu til að tryggja framúrskarandi aðstöðu til framtíðar fyrir ört stækkandi starfsmannahóp okkar. Auk mikils fjölda verktaka sem vinna að stækkun rekstursins, erum við með um 80 fasta starfsmenn á Íslandi og þriðjungur þeirra er á Akureyri,“ segir Anna Kristín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar hjá atNorth.

Alls rekur atNorth átta gagnaver á Norðurlöndum, þar af þrjú á Íslandi. Tvö til viðbótar eru í smíðum í Danmörku og Finnlandi, auk þess sem stækkun gagnaversins á Fitjum í Reykjanesbæ er í fullum gangi. Starfsmenn atNorth eru rúmlega 200.