Fara í efni
Fréttir

Glæsilegt frístundahús nema VMA til sölu

Nemendur í húsasmíði, rafvirkjun og pípulögnum við VMA byggja hús á hverju ári sem er svo selt. Nú hefur skólinn auglýst eftir tilboðum í frístundahús til flutnings, en húsið er staðsett á lóð VMA. Húsið er þó ekki fullklárað, en selst í því ástandi sem það er á lokatilboðsdegi. Bygging þess er hluti af verklegri þjálfun nemenda yfir veturinn.

Húsið verður til sýnis í byrjun næstu viku.

Upplýsingar um húsið er að finna í frétt á vef VMA, þar sem segir meðal annars:

Húsið er úr timbri, 64 m2 að grunnfleti með 8,3 m2 millilofti að auki þar sem getur verið svefnaðstaða og/eða geymsla. Að utan er húsið klætt hvítmálaðri bandsagaðri vatnsklæðningu úr furu frá Húsasmiðjunni og járngráu bárujárni (7011 litur, Bára 18). Þakkantar eru klæddir 2 mm þykku áli. Þak er bárujárnsklætt (aluzink). Innréttingar eru spónlagðar með ask-spón frá Efnissölunni, eldhúsinnrétting, baðherbergisinnrétting og 3 fataskápar. Loft eru klædd með hvítum loftaþiljum. Veggir eru klæddir 12 mm walls2paint spónaplötum. Baðherbergi er klætt Fibotrespo baðplötum frá Þ.Þorgrímsson. Innihurðir fylgja (ekki uppsettar), hurðir, slaglistar og gerekti eru spónlögð með aski.

Húsið er án endanlegra gólfefna. Gert er ráð fyrir gólfhitakerfi sem tengt yrði í lagnaskáp utan við aðalhurð. Ekki hefur verið lagður gólfhiti, eða sett upp tengikista. Rafmagn er langt komið, nánari upplýsingar í meðfylgjandi QR kóða. Húsið er einangrað með 150 mm steinull í gólfi og útveggjum, þak er einangrað með 245 mm steinull. Gluggar eru frá Hyrnu/Húsheild og eru allir með tvöföldu TopN+ gleri, gasfylltu.

Húsið selst í því ástandi sem það er í á tilboðsdegi.

Ekki verður tekið við tilboðum sem eru lægri en 20 milljónir kr. en Verkmenntaskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

...

Hér eru tölvugerðar myndir af húsinu.
Hér eru teikningar af húsinu og tæknilegar upplýsingar.
Hér eru nokkrar útlitsmyndir af húsinu, teknar í maí 2024.
Hér er QR-kóði með frekari upplýsingum um raflögn í húsinu.
Hér er myndband þar sem Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar og einn kennara við deildina, sýnir húsið og segir frá því.