Gjaldfrjáls bílastæði fyrir eldri borgara?
Meirihluti bæjarráð samþykkti á dögunum að fela bæjarlögmanni og sviðsstjóra fjársýslusviðs að kanna útfærslu fyrirkomulags á gjaldfrjálsum bílastæðum fyrir eldri borgara. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn telja fyrirliggjandi forsendur sem meirihlutinn vinnur út frá ekki besta kostinn.
Tveir fulltrúar minnihlutans í bæjarráði og tveir áheyrnarfulltrúar, þau Hlynur Jóhannsson M-lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista, Sindri S. Kristjánsson S-lista og Þórhallur Jónsson A-lista, lögðu fram sameiginlega bókun þar sem þau segja að fyrirliggjandi forsendur virðist ekki vera aðrar en að efna kosningaloforð eins af þeim stjórnmálaflokkum sem standa að nýjum meirihluta. „Ef tillagan snýst raunverulega um að auka aðgengi eldri borgara að miðbæ Akureyrar teljum við að aðrar leiðir séu betur til þess fallnar,“ segir meðal annars í bókun fjórmenninganna.
Hlynur greiddi atkvæði gegn tillögu meirihlutans, en Sindri sat hjá. Þau Jana Salóme og Þórhallur eru áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.