Fara í efni
Fréttir

Gersemar boðnar til sölu í fatapartíi

Katrín Káradóttir verslunareigandi í Kistu hóar konum saman á fimmtudaginn í Hofi sem selja munu notuð föt og styðja við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í leiðinni.

Glæsilegt fatapartý verður haldið í Hofi á Akureyri næsta fimmtudag. Að baki viðburðinum standa Katrín Káradóttir, eigandi verslunarinnar Kistu, og Björg Marta Gunnarsdóttir, búningahönnuður hjá Leikfélagi Akureyrar.

Markmið fatapartýsins er að gefa fallegum flíkum framhaldslíf, hvetja til endurnýtingar og sýna að gamalt getur orðið nýtt á nýjan leik. Fjöldi vel valinna kvenna á Akureyri mun bjóða til sölu gersemar úr eigin fataskápum og gefa þannig öðrum tækifæri til að eignast einstakar flíkur. Þá verður sérstök góðgerðarslá á svæðinu þar sem vel valdar flíkur frá Rauða krossinum fá að njóta sín og eins leggja allar konurnar sem eru með gersemar til sölu í fatapartýinu til flík á slána. Allur ágóði af sölu góðgerðarslárinnar rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Kata í Kistu hefur grafið djúpt inn í eigin fataskáp og fundið þar 20 ára stígvél sem hún notaði mikið þegar hún var að vinna í bankageiranum. Þau verða boðin til sölu í fatapartýinu á fimmtudag. 

Föt eiga það til að skreppa saman

Sambærileg fatapartý hafa áður verið haldin í Hofi og notið mikilla vinsælda. Að sögn Katrínar er hugmyndin bæði skemmtileg og umhverfisvæn. „Eins og margar konur kannast við þá eiga flíkur það til að skreppa saman í skápnum, þannig að það er gott að koma þeim áfram til annarra,“ segir Katrín og brosir. Hún segir viðburðinn fyrst og fremst vera til gamans gerðan, en um leið frábært tækifæri til að hleypa nýju lífi í fallegar flíkur sem eiga skilið að vera notaðar áfram. Hún hvetur því alla sem hafa áhuga á tísku, endurnýtingu og góðu málefni til að líta við í Hofi á fimmtudaginn 16. júlí milli klukkan 14 og 18.