Fara í efni
Fréttir

Gengu með logandi ljós gegn ofbeldi

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri gefur Ingibjörgu Auðunsdóttur eld, ef svo má segja, áður en ljósagangan hófst í gær við Zontahúsið. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Ljósaganga gegn ofbeldi var farin í gær, 1. desember, í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Gengið var með logandi kyndla frá Zontahúsinu, Aðalstræti 54, og að Aðalstræti 14 þar sem Bjarmahlíð er til húsa, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Töluverður fjöldi fólks safnaðist saman við Zontahúsið og gekk í rólegheitum norður að Bjarmahlíð, með Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra á Akureyri og Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, í broddi fylkingar. Þar hélt Páley tölu; hún hjóp í skarðið fyrir Bjarneyju Rún Haraldsdóttur, teymisstjóra Bjarmahlíðar, sem var auglýst ræðumaður en veiktist.

Að göngunni stóðu Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna ásamt nemendafélögum Menntaskólans á Akureyri, Hugin, og Verkmenntaskólans á Akureyri, Þórdunu.