Fara í efni
Fréttir

Gagnaver atNorth rís á Akureyri

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, handsala viljayfirlýsinguna í dag.

Forstjóri atNorth og bæjarstjórinn á Akureyri undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu og rekstur gagnavers á Akureyri – fyrsta gagnaversins á svæðinu. Samkvæmt yfirlýsingunni leigir fyrirtækið lóð til starfseminnar á skipulögðu athafnasvæði í útjaðri bæjarins, þar sem atNorth stefnir á að hefja framkvæmdir á næstu mánuðum.

Gagnaverið verður við Hlíðarfjallsveg, ekki er endanlega ljóst hve mikla orku þarf til rekstursins fyrst í stað en atNorth stefnir að því að verða stórnotandi og þarf þá að kaupa að minnsta kosti 10 megavött (MW).

Í tilkynningu segir að verkefnið sé liður í uppbyggingu græns iðnaðar á Akureyri og muni auka fjölbreytni og fjölga störfum í hátækniiðnaði á svæðinu. Þar segir:

  • Stefnt er að framkvæmdum á næstu mánuðum
  • Eykur fjölbreytni og fjölgar hátæknistörfum á svæðinu
  • Þetta verkefni fellur vel að stefnu bæjarsins og rímar við nýlegar innviðaframkvæmdir á Norðausturlandi

Ótvíræðir kostir

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, segir kosti þess ótvíræða að byggja gagnaver á Akureyri. „Hér er til staðar mikil þekking, mannauður og traust fyrirtæki sem geta veitt atNorth góða þjónustu við rekstur og viðhald á tæknibúnaði í gagnaverinu. Héðan ætlum við bæði að þjóna innlendum og erlendum viðskiptavinum, en með gagnaveri á Akureyri getum við dreift betur áhættunni í rekstrinum. Vistun og vinnsla gagna fer þá fram á fleiri stöðum en áður, aðgengi að gagnatengingum úr landi verður betra og öryggismálum verður enn betur fyrir komið,” segir Eyjólfur Magnús. Hann segir góðar flugsamgöngur líka skipta sköpum, enda taki aðeins um 60 mínútur að komast frá Reykjavíkurflugvelli inn í nýtt gagnaver atNorth á Akureyri þegar verkefninu verði lokið.

Fyrirtækið rekur fyrir gagnaver í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og í Stokkhólmi í Svíþjóð. Mikil eftirspurn er eftir þjónustunni og er hafin vinna við stækkun gagnaversins í Stokkhólmi og í Reykjanesbæ. Þá leitar fyrirtækið að staðsetningu fyrir stórt gagnaver á Norðurlöndum sem mun nýta um 50MW af raforku til starfseminnar.

Jákvæð samfélagsáhrif

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, fagnar boðaðri uppbyggingu og segir hana styrkja atvinnulífið á svæðinu. „Þetta verkefni rímar vel við nýlegar innviðaframkvæmdir á Norðausturlandi sem tryggja raforkuflutning inn á svæðið. Aukið öryggi í flutningi raforku inn á Eyjafjarðarsvæðið gerir uppbyggingu af þessu tagi mögulega með öllum þeim jákvæðu samfélagsáhrifum sem fylgja,” segir Ásthildur.

Rekstur gagnavera atNorth á suðvesturhorninu hefur gengið vel og eftirspurn eftir þjónustu þeirra er mikil, að því er segir í tilkynningunni. „Hröð tæknivæðing og stafræn þróun í atvinnulífinu, rannsóknum og gagnavistun kallar mjög á aukna gagna- og reiknigetu. atNorth hefur mætt þeirri eftirspurn erlendis með byggingu nýs gagnavers í Stokkhólmi í Svíþjóð, en jafnframt hefur fyrirtækið til skoðunar að reisa risa-gagnaver annars staðar á Norðurlöndunum. Orkuþörf þess er áætluð um 50MW og eru þreifingar um kaup á orkunni komnar nokkuð á veg.”

Brautryðjandi

  • Um fyrirtækið segir í tilkynningu þess í dag:

atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, byggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi og í Svíþjóð. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir ýmiskonar, í heilbrigðisvísindum, í genarannsóknum, við framleiðslu, í fjármálaiðnaði og veðurfræði. Þjónustur atNorth nýtast þessum viðskiptavinum vel til þess að vinna gögn með hámarksafköstum, á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum hefur fyrirtækið nýtt á snjallan hátt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annarstaðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. atNorth hannar gagnaver sín með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmri orkunýtingu.

Frekari upplýsingar um atNorth má finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com, einnig er hægt að fylgja atNorth á Linkedin