Fara í efni
Fréttir

Gáfu VMA verkfæri fyrir á aðra milljón króna

Frá vinstri: Hinrik Þórðarson, kennari í pípulögnum, Helgi Valur Harðarson, brautastjóri byggingadeildar, Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari VMA, Elmar Þór Björnsson, verslunarstjóri Verkfærasölunnar á Akureyri, Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari VMA, og Brynjar Schiöth, sölumaður Verkfærasölunnar á Akureyri.

Fulltrúar Verkfærasölunnar komu færandi hendi í Verkmenntaskólann á Akureyri á dögunum. „Verkfærasalan flytur inn verkfæri og aukahluti frá hinum heimsþekkta framleiðanda Milwaukee,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu, og það voru rafmagnsverkfæri af þeirri tegund sem Verkfærasalan gaf byggingadeild skólans, fyrir nemendur og kennara í pípulögnum. Verðmæti verkfæranna er á aðra milljón króna. Þetta kemur fram á vef VMA.

Einnig komu fulltrúar fyrirtækisins með ótal handverkfæri sem VMA keypti af Verkfærasölunni á góðum kjörum. Öll munu þessi nýju verkfæri nýtast vel fyrir nemendur og kennara í pípulögnum, sem er einn angi námsins í byggingadeild, segir ennfremur á vef VMA.

„Það er mikið ánægjuefni fyrir Verkfærasöluna að geta lagt öflugu námi í byggingadeild VMA lið með þessum hætti,“ sagði Elmar Þór Björnsson verslunarstjóri Verkfærasölunnar við þetta tækifæri. Fimm ár eru síðan fyrirtækið opnaði verslun á Akureyri. „Fyrst var hún í húsnæði við Dalsbraut en er nú til húsa að Tryggvabraut 14 - gengið inn frá Furuvöllum. Fyrirtækið var stofnað í Reykjavík árið 1997 og þar eru höfðustöðvarnar en einnig er verslun Verkfærasölunnar í Hafnarfirði. Einar Þór segir versluna á Akureyri ganga mjög vel og eiga sér dygga viðskiptavini hjá verktökum og almenningi,“ segir á vef VMA.

„Að sjálfsögðu var boðið upp á köku í tilefni dagsins,“ segir á vef skólans. Til móttökunnar mættu kennarar og nemendur í byggingadeild, þ.m.t. pípulagnanemar. Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar, og Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari VMA, tóku til máls.„Við þökkum Verkfærasölunni fyrir þessa höfðinglegu gjöf og þann stuðning sem fyrirtækið sýnir skólanum með henni,“ sagði skólameistari meðal annars.

Nánar hér á vef VMA

Verkfærasalan

Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar VMA tók til máls.

Nemendur og kennarar VMA í pípulögnum skoða nýju Milwaukee verkfærin.