Fréttir
Gæslan 100 ára – „Opið hús“ í Þór í dag
18.04.2026 kl. 06:00
Nemendur úr Brekkuskóla fengu að skoða varðskipið Þór í vikunni og skemmtu sér vel. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Landhelgisgæsla Íslands býður almenningi að heimsækja varðskipið Þór í dag, þar sem það liggur við bryggju á Akureyri. „Heimsóknin er liður í hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis stofnunarinnar, en af því tilefni hefur Landhelgisgæslan ferðast víða um land og boðið landsmönnum að kynna sér starfsemina,“ segir í tilkynningu.
- Þór er við Oddeyrarbryggju
- „Opið hús“ er í skipinu í dag, laugardaginn 18. apríl milli kl. 13:00 og 16:00.
„Við hvetjum sem flesta að koma um borð og kynna sér starfsemina sem þar fer fram,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.