Fyrsti tunglfiskur við Norðurland í 126 ár?
Dauður tunglfiskur fannst við Leiruveg á Akureyri á laugardagskvöldið og skv. skráðum tilfellum er þetta í fyrsta skipti í 126 ár sem þessi tegund sést við Norðurland. Raunar eru aðeins tvö eldri dæmi þess að tunglfiskur hafi fundist norðan 65. breiddargráðu hér við land, árin 1845 og 1900, og er þar um að ræða elstu skráðu tilfellin um tunglfiskreka, að því er fram kemur í ritrýndri grein í Tímariti Hins íslenskra náttúrufræðingafélags árið 2020.
Það var Hlín Garðarsdóttir sem fann tunglfiskinn í fjöru grjótgarðs sem skagar norður úr Leiruvegi, út í Pollinn. Hlín var í göngutúr þegar hún sá glitta í eitthvað ljóst í myrkrinu, taldi í fyrstu líklegt að þetta væri plast eða annars konar drasl sem rekið hefði á fjöru en forvitni var vakin og þegar hún kom nær blasti þessi furðulegi, næstum sporöskjulaga fiskur við. Tunglfiskur (Mola mola) er úthafsfiskur og útbreiddur í öllum heimshöfum. Hann hefur verið talinn flækingur á Íslandsmiðum, finnst nú orðið árlega en heldur sig í hlýrri sjó en er norðan við land.

Ekki er vitað hve tunglfiskurinn hafði legið lengi í flæðarmálinu þegar Hlín varð hans vör. Svo virtist sem búið væri að éta hluta fisksins en ekki gott að segja hvort fuglar áttu þar hlut að máli, selur sem þau Hlín urðu vör við á Pollinum spölkorn frá eða hvort skýringin sé einhver allt önnur.

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Hlín segist strax hafa orðið mjög spennt þegar hún sá fiskinn og ekki síður börn hennar tvö sem voru með í för, þau Jóna Rún og Kristian Kári, og Alexandra Ýrr vinkona þeirra. Fimmti göngugarpurinn, eiginmaður Hlínar, Guðmundur Rúnar Brynjarsson sjómaður, var strax viss í sinni sök og akureyri.net fékk staðfest hjá fiskifræðingi að þetta væri tunglfiskur.


Alexandra Ýr Árnadóttir, Jóna Rún Guðmundsdóttir og Kristian Kári Guðmundsson skoða tunglfiskinn. Mynd: Hlín Garðarsdóttir.
Ólafur og Jónbjörn segja að þyngd tunglfiska sem veiddust við Ísland árið 2012 bendi einnig til þess að aðallega komi tiltölulega stórir fiskar inn á íslensk hafsvæði. „Tunglfiskur fannst í hafinu við Ísland af og til á 20. öld en aldrei nema einn fiskur á ári. Frá árinu 2000 hefur árleg tíðni fiska sem rekur á land á hinn bóginn aukist verulega og fleiri fiskar veiðst á Íslandsmiðum. Þetta kann að tengjast breytingum á staðbundnu ástandi sjávar við Ísland en vegna víðáttumikillar útbreiðslu tunglfisks kunna ráðandi veðurfyrirbrigði í Norður-Atlantshafi einnig að hafa þar áhrif.“
- Grein Ólafs S. Ástþórssonar og Jónbjörns Pálssonar í Tímiriti Hins íslenska náttúrufræðifélags:
Tunglfiskur (Mola mola) á Íslandsmiðum í ljósi veðurfarsbreytinga