Fara í efni
Fréttir

Fullnægjandi tilboð barst ekki í rekstur Hlíðarfjalls

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Aðeins eitt tilboð barst í rekstur útivistarsvæðisins í Hlíðarfjalli og það þótti ekki fullnægjandi, skv. upplýsingum frá Akureyrarbæ. Tilboðið þótti ekki uppfylla hæfisskilyrði og var þar af leiðandi hafnað.

Sveitarfélagið ákvað í sumar að bjóða út allan rekstur svæðisins í Hlíðarfjalli og ráð var gert fyrir samningi til þriggja ára til að byrja með, með möguleika á framlengingu um eitt ár í tvígang – fimm ár alls.

Ríkiskaup, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskaði eftir tilboðum í heilsársrekstur svæðisins, og rann tilboðsfrestur út í byrjun vikunnar.

Akureyrarbær hefur rekið skíðasvæðið að öllu leyti frá upphafi þar til á síðasta ári að veitingasala og skíðakennsla voru boðin út. Til stóð að sá sem samið yrði við sæi um allt varðandi svæðið meðan á skíðavertíðinni stæði, auk þess sem viðkomandi gæti boðið upp á einhvers konar aðra starfsemi yfir sumartímann.

Ekki er ljóst hver verða næstu skref í málinu en það ætti að skýrast fljótlega.