Fara í efni
Fréttir

Frysta fyrirhugaða hækkun eigin launa

Bæjarráð Akureyrar samþykkti samhljóða í morgun að laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra hækki ekki um mánaðamótin eins og þau hefðu annars gert. Einnig var ákveðin sú breyting að gatnagerðargjöld verða ekki lengur innheimt við lóðarúthlutun heldur þegar byggingarleyfi er gefið út. 

Þá samþykkti bæjarráð að stefnt skuli að því að halda gjaldskrám þjónustu við fjölskyldur sem mest óbreyttum við gerð næstu fjárhagsáætlunar og skoðað verður hvort svigrúm sé til lækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda, með sérstakri áherslu á atvinnuhúsnæði. 

„Ábyrg fjármálastjórn hefst hjá kjörnum fulltrúum“

Oddvitar flokkanna þriggja sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar fjalla um þetta í grein sem akureyri.net birtir í dag. Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir segja að óbreyttu hefðu laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra tekið gildi 1. júlí en laun kjörinna fulltrúa hjá Akureyrarbæ hækka tvisvar á ári miðað við launavísitölu. „Nú þegar hafa laun bæjarstjóra lækkað um 13,4%, auk þess að spara laun eins bæjarfulltrúa sem nemur um 5,5 milljónum króna á ári. Með þessu sýnum við í verki að ábyrg fjármálastjórn hefst hjá kjörnum fulltrúum,“ segja í greininni.

Með aðgerðapakkanum, sem samþykktur var í bæjarráði, „eru send skýr skilaboð um að ákvarðanir í rekstri taki mið af því sameiginlega markmiði að draga úr verðbólgu og lækka vexti,“ segja þau meðal annars. „Jafnframt er mikilvægt að standa vörð um stöðugleika á vinnumarkaði og að allir leggist á eitt til að tryggja að kjarnasamningar haldi í haust. Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki með því að sýna hófsemi við ákvörðun gjaldskráa og sýna í verki að þau séu reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að styrkja forsendur farsælla kjarasamninga og stöðugs efnahagsumhverfis. Við munum ekki láta okkar eftir liggja þegar kemur að því að rækja það hlutverk okkar.“

  • Grein Óðins, Sunnu og Berglindar:

Við ætlum að leggja okkar af mörkum