Fara í efni
Fréttir

Frístundastyrkur hækkar um 5.000 kr

Ljósmynd: María Helena Tryggvadóttir

Frístundastyrkur til niðurgreiðslu á æfinga- og þátttökugjöldum barna og unglinga á Akureyri verður 5.000 kr. hærri á þessu ári en því síðasta; hækkar úr 40.000 kr. í 45.000 kr. frá og með deginum í dag. Akureyri.net greindi frá þessu eftir að fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í desember en rétt að  minna á það í upphafi árs.

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og gildir út árið sem unglingurinn verður 17 ára.

„Til að nota frístundastyrkinn skal fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur inn á skráningarsíðu (Sportabler) þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í skráningar- og greiðsluferlinu geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ,“ segir á vef Akureyrarbæjar í dag.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögin veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig.

  • Árið 2023 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 2006 til og með 2017
  • Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert

Smellið hér til að sjá frekari upplýsingar.