Friðrik Þór tekur við af Matthíasi hjá Stefnu
Friðrik Þór Snorrason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Stefnu ehf. Hann tekur við starfinu af Matthíasi Rögnvaldssyni, sem tekur sæti í stjórn félagsins.
Í fréttatilkynningu frá Stefnu kemur fram að Friðrik Þór búi yfir víðtækri reynslu úr tæknigeiranum og af rekstri fyrirtækja. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri tryggingatæknifélagsins Verna og þar áður sem forstjóri Reiknistofu bankanna (RB). Friðrik hefur sömuleiðis gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum og ráðgjafarhlutverkum á sviði upplýsingatækni og nýsköpunar í gegnum tíðina.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að Friðrik hlakki til að takast á við ný verkefni hjá Stefnu, sem hafi um árabil verið leiðandi í þróun vef- og hugbúnaðarlausna á Íslandi. „Ég er afskaplega spenntur fyrir verkefninu og þakklátur því trausti sem mér er sýnt með því að treysta mér fyrir rekstri og vexti félagsins. Orðspor félagsins er afar gott, sama hvort talað er um tæknimenn, hönnuði eða stjórnendur,“ segir Friðrik í fréttatilkynningunni.
Björn Gíslason, stjórnarformaður Stefnu, segir ráðninguna mikilvægan lið í áframhaldandi vegferð félagsins og þakkar jafnframt Matthíasi fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir hans framlag. „Við erum afar ánægð að fá Friðrik til liðs við okkur og erum sannfærð um að hann sé rétti aðilinn í starfið. Reynsla hans og þekking mun nýtast Stefnu vel í þeirri vegferð sem er framundan enda margt spennandi í pípunum. Á þessum tímamótum er einnig vert að þakka Matthíasi Rögnvaldssyni fyrir það mikla og góða starf sem hann hefur unnið fyrir félagið, enda hafa nöfn Matthíasar og Stefnu verið samofin allt frá stofnun félagsins,“ segir Björn í fréttatilkynningunni.
Stefna er með skrifstofur bæði á Akureyri og í Reykjavík og sérhæfir sig í stafrænum lausnum fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu sem viðkemur hugbúnaðargerð; greiningu, hönnun, vefun, forritun, ráðgjöf, aðgengi og efnismálum.