Fara í efni
Fréttir

Framsóknarfélag kærir Konur í Framsókn

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag til siðanefndar flokksins að hópurinn Konur í Framsókn skuli auglýsa fund með Lilju Alfreðsdóttur 10. febrúar, nokkrum dögum áður en flokksþing Framsóknar hefst. Á þinginu verður kosinn nýr formaður flokksins og tvær konur eru í kjöri, Lilja og Ingibjörg Isaksen, þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi.

Þingið fer fram 14. og 15. febrúar. „Við teljum það brot á siðareglum flokksins að félagið Konur í Framsókn skuli opinberlega hampa öðrum frambjóðandanum með þessum hætti rétt fyrir flokksþingið,“ sagði Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis við akureyri.net í dag.

Thea Rut kveðst ekki geta fullyrt að með þessu sé hópurinn, Konur í Framsókn, að lýsa yfir stuðningi við Lilju; það láti hún liggja á milli hluta, en uppátækið sé afar taktlaust.

„Allir vita að tvær konur eru í framboð til formanns en aðeins önnur þeirra er auglýst svona rétt fyrir þingið. Auðvitað hefði verið sjálfsagt mál að auglýsa þær báðar á þessum tíma,“ segir Thea Rut, eða þá að svona fundur með Lilju hefði verið haldinn eftir flokksþingið.

Konur í Framsókn er formlegur hópur með formanni og stjórn. Hópurinn er opinn öllum Framsóknarkonum og Thea Rut kveðst vera félagi.

Ingibjörg Isaksen formaður þingflokksins Framsóknar og alþingismaður fyrir Norðausturkjördæmi býður sig fram til formennsku í flokknum eins og Lilja Alfreðsdóttir.


BÚBBLUR & BANDALÖG
Auglýsingin sem um ræðir er hér eða neðan.
Í kynningu á Facebook, þar sem auglýsingunni er deilt segir: Hlökkum til að sjá ykkur í Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals þriðjudaginn 10. febrúar. Staðan í alþjóðamálum og hér á norðurslóðum rædd. Hver er staða Íslands og hvar er okkur best borgið í breyttri heimsmynd? Kalt og freyðandi á meðan birgðir endast og Happy Hour tilboð á barnum.