Framkvæmdum að ljúka við Andapollinn
Framkvæmdir standa nú yfir við efri laug Andapollsins við Sundlaug Akureyrar og eru þær á lokastigi samkvæmt upplýsingum frá Guðríði Friðriksdóttur, sviðsstjóra Umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar.
Efri laugin hefur verið vatnslaus um nokkurt skeið vegna framkvæmda við nýja innilaug sundlaugarinnar. Á framkvæmdatímanum þurftu vinnuvélar að fara um svæðið og því var ekki unnt að halda vatni í lauginni á meðan. Nýlega var steyptur nýr kantur við laugina þeim megin sem snýr að sundlaugarhúsinu og hefur laugin jafnframt verið stytt lítillega. Nú er unnið að því að ganga frá nánasta umhverfi eftir framkvæmdatímann.
Að sögn Guðríðar eru uppi áform um frekari gróðursetningu á svæðinu, meðal annars í brekkunum norðan og sunnan við laugina en svæðið er eitt moldarflag eftir framkvæmdirnar. Að sögn Guðríðar liggur ekki endanlega fyrir hvernig gróður verður valinn, en líklegt er að þar verði meðal annars gróðursett tré. Vatni hefur verið hleypt á andapollinn og bendir það til þess að framkvæmdum fari senn að ljúka. Eftir svo stendur lokafrágangur á borð við að ganga frá girðingum. Að sögn Guðríðar eru ekki áform um breytingar á neðri laug Andapollsins að svo stöddu.

Endurnar virðast bíða spenntar eftir því að framkvæmdir klárist svo þær komist yfir á svæðið handan girðingarinnar. Mynd: SNÆ