Fréttir
„Frábært tækifæri til að æfa undir álagi“
05.05.2026 kl. 06:00
Myndir: Þorgeir Baldursson
„Við á A vaktinni förum nokkrum sinnum á ári í kirkjutröppurnar. Þarna fáum við frábært tækifæri til að æfa okkur undir álagi með loftkútana og sjá hvar við stöndum varðandi loftnotkun og líkamsálag.“
Þetta segir Hörður Halldórsson aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á Akureyri þegar forvitnast var um það hvers vegna nokkrir úr liðinu gengu upp og niður þekktustu kirkjutröppur landsins síðasta laugardagsmorgun í fullum herklæðum; í búningum, með kút á bakinu og þar til gerðar grímur.

A-vaktin á æfingu við Akureyrarkirkju. Frá vinstri: Aron Örn Þorleifsson, Margrét Dúna Gunnarsdóttir, Rolf Tryggvason, Hörður Halldórsson, Þorsteinn Ægir Egilsson, Ísak Godsk Rögnvaldsson og Bryndís Elva Bjarnadóttir.
Reykköfun í aðgerð stendur í 10 til 20 mínútur eftir eðli aðgerða, að sögn Harðar. „Fyrsta árás og björgunarkafanir eru of styttri en með mun meiri hraða og ákefð en svo erum við mikið að vinna í rýmum eftir að við höfum slökkt elda í niðurrifi og leit að glóðum og þær kafanir taka og mun lengri tíma,“ segir hann. Að þessu sinni fór hver slökkviliðsmaður 10 til 13 ferðir með hvern kút, æfingin stóð í um hálftíma „og kom ákaflega vel út.“
Slökkviliðsmenn þurfa að skila að lágmarki sex klukkustundum á ári í virkri reykköfun, hvort sem það er í aðgerð eða æfingum. „Við nýtum lausar stundir á vöktunum í allskonar æfingar, reykköfunaræfingar eru stór partur af æfingunum okkar en við þurfum líka að æfa okkur á önnur tæki og tól í slökkviliðsþættinum og viðhalda þekkingu og þjálfun á sjúkrabílnum,“ segir Hörður Halldórsson.

