Fórnarlamba bílslysa minnst við athöfn í dag
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag, sunnudag 15. nóvember. Minningarstund verður haldin af því tilefni hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, að Hjalteyrargötu 12. Í tilkynningu frá Súlum eru allir hvattir til að mæta.
- Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir
- Myndataka viðbragðsaðila
- Heimir Ingimarsson flytur lagið When I Think of Angels
- Gunnar Már Gunnarsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flytur ávarp
- Emma Agneta Björgvinsdóttir flytur reynslusögu sína
- Séra Sindri Geir Óskarsson flytur hugvekju og stýrir einnar mínútu þögn
- Broddi Pálmi Ottesen Pétursson lögreglumaður flytur ávarp
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.
„Ljóst er að umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu og snerta landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu kom m.a. fram að u.þ.b. fjórðungur Íslendinga, rúmlega 26%, hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi,“ segir í tilkynnningu frá Samgöngustofu vegna minningardagsins.
Sjónum minningardagsins er, sem fyrr segir, beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks, segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur:
- Ungir ökumenn eru hlutfallslega talsvert líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en þeir eldri. Það sem kann helst að skýra þetta er að ungir ökumenn búa yfir minni reynslu og að ungmenni meta oft eigin hæfni meiri en raunhæft er.
- Á hinn bóginn hafa ungir ökumenn, samkvæmt slysaskráningu og viðhorfskönnunum Samgöngustofu, bætt sig á síðustu árum og standa sig almennt betur í umferðinni en áður.
- Slysum af völdum ungra ökumanna hefur fækkað talsvert á síðustu 20 árum. Þá hefur slösuðum ungmennum í bifreið einnig fækkað mikið. Þessa jákvæðu þróun má rekja til nokkurra samverkandi þátta. Þar má nefna öflugt ökunám, auknar kröfur um öryggi ökutækja, betri öryggisráðstafanir á vegum og markvisst fræðslustarf á öllum skólastigum og í fjölmiðlum.
Hræðileg slys vegna hraðaksturs
„Mjög alvarlegar undantekningar eru frá þessari almennu þróun. Síðustu mánuði og misseri hafa orðið hræðileg slys sem rekja má til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar ungra ökumanna. Samkvæmt gögnum Lögreglunnar eru skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum. Eins eru nýleg banaslys vitnisburður um það.“