Fara í efni
Fréttir

Formlegar viðræður HA og Háskólans á Bifröst

Samningurinn undirritaður. Frá vinstri: Elín Díanna Gunnarsdóttir, starfandi rektor Háskólans á Akureyri Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. Mynd af vef stjórnarráðsins.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingu ásamt Elínu Díönnu Gunnarsdóttur, starfandi rektor Háskólans á Akureyri og Margréti Jónsdóttur Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, um að hefja formlegar viðræður um samstarf og mögulega sameiningu háskólanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.

Viðræðurnar munu felast í fýsileikagreiningu á því hvaða samruna- eða samstarfsform henti best til að tryggja áframhaldandi starfsemi skólanna beggja með aukin gæði þeirra að markmiði. Skólarnir tilnefna báðir þrjá aðila í viðræðurnar sem leiddar eru af Aðalsteini Leifssyni, fyrrverandi ríkissáttasemjara.

,,Ég hef í starfi mínu sem háskólaráðherra lagt mikla áherslu á að finna leiðir til að auka samkeppnishæfni íslenskra háskóla og ná árangri í gegnum árangurstengnda fjármögnun háskólanna. Stóraukið samstarf eða sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst felur í sér möguleikann á því að til verði mjög öflugur háskóli sem hefur fjárhagslega burði og fræðilega getu til þess að skapa sér sérstöðu sem landsbyggðarháskóli en einnig er horft til þess að skólinn gæti orðið algjörlega leiðandi í fjarnámi á landsvísu,” er haft eftir ráðherra í tilkynningunni.