Fara í efni
Fréttir

Forgangsljósaakstur í dag – á 112 deginum

Margir fylgdust með akstri viðbragðsaðila og ljósasýningu bílanna á síðasta ári, m.a. þessi ungi drengur við Austursíðu. Fólk er hvatt til að fylgjast með bílalestinni í sínu hverfi. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Hinn árlegi 112 dagur verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag, miðvikudaginn 11. febrúar, og á Akureyri munu viðbragðsaðilar á svæðinu aka hring um bæinn með kveikt á forgangsljósum. Lagt verður af stað frá slökkvistöðinni við Árstíg kl. 17:30 og ekinn verður ríflega klukkustundarlangur hringur um bæinn. Fyrst gegnum Glerárhverfi, síðan gegnum bæinn til suðurs og svo Drottningarbrautina áleiðis aftur að slökkvistöðinni.

Markmið dagsins er að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer 1-1-2 ásamt því að vekja athygli á sálrænu viðbragði. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer.

Á þessu ári fagnar Neyðarlínan 30 ára afmæli sínu en neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.

Kort af leiðinni sem viðbragðsaðilar munu aka um með kveikt á forgangsljósum. Fyrst verður ekið til norðurs og síðan gegnum Glerárhverfi suður gegnum bæinn og Drottningarbraut til baka.