Fara í efni
Fréttir

Foreldrar þurfi ekki að borga útför barna

Það er fátt sem getur búið foreldra undir þá sorg að missa barn. En ofan á áfallið bætist við verulegur kostnaður við útför, kostnaður sem getur hlaupið á hundruðum þúsunda króna. Nýr útfararsjóður hefur nú verið stofnaður með það að markmiði að létta þessari fjárhagslegu byrði af aðstandendum barna og unglinga.

„Mér finnst í raun bara samfélagslega rangt að fólk þurfi að borga fyrir útfarir barnanna sinna. Mér finnst það í grunninn mjög skrýtið,“ segir Sindri Swan, myndasmiður og leikari, á Akureyri, sem stofnað hefur Útfararsjóð barna og unglinga. Markmið sjóðsins er að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini sína með reisn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reikningnum sem bíður þeirra að athöfn lokinni. Sindri vonast til að með tíð og tíma geti sjóðurinn staðið undir útfararkostnaði allra barna og unglinga hér á landi. Sjóðurinn er formlegt almannaheillafélag og geta áhugasamir lagt verkefninu lið í gegnum heimasíðuna utfararsjodur.is.

„Mér finnst mikilvægt að ef maður hefur einhverja svona prinsippskoðun þá sitji maður ekki bara á henni. Það breytist ekkert ef maður gerir aldrei neitt og ég held að það sé mikilvægt að reyna að vera breytingin sem maður vill sjá í samfélaginu,“ segir Sindri sem hefur komið á fót útfararsjóði fyrir þá sem missa barn. Mynd: Daníel Starrason 

Hörmulegar fréttir kveiktu hugmyndina 

Sindri hefur sjálfur ekki upplifað þá sorg að missa barn. Hugmyndin að sjóðnum spratt heldur ekki af persónulegum tengslum við fjölskyldur sem höfðu lent í slíkum harmleik. Hann segist einfaldlega hafa séð eitthvað í samfélaginu sem honum fannst rangt og ákveðið að reyna að breyta því. Hann segir að hugmyndin hafi kviknað fyrir um tveimur árum þegar hann fylgdist með fréttum af nokkrum hörmulegum dauðsföllum íslenskra barna og ungmenna hér á landi. Þá fór hann að velta því fyrir sér hvort ekki væri hægt að gera eitthvað til að létta undir með fjölskyldum sem stæðu frammi fyrir slíkum harmleik.

„Maður getur auðvitað ekkert gert til að taka sorgina frá fólkinu. En maður getur samt gert eitthvað til að létta undir,“ segir Sindri og heldur áfram: „Mér finnst mikilvægt að ef maður hefur einhverja svona prinsippskoðun þá sitji maður ekki bara á henni. Það breytist ekkert ef maður gerir aldrei neitt og ég held að það sé mikilvægt að reyna að vera breytingin sem maður vill sjá í samfélaginu. Það er ekki hægt að sitja bara og nöldra allan daginn og gera ekki neitt.“

Sindri bendir á að fjölskyldur sem missa börn hafi oft þegar gengið í gegnum langvarandi veikindi, álag og erfiðleika. Í öðrum tilvikum beri dauðsfallið að með öllu óvæntum hætti. Í báðum tilvikum sé sorgin nægilega þung byrði þótt fjárhagsáhyggjur bætist ekki við.

Aðstoð í gegn um útfararþjónusturnar

Að sögn Sindra getur kostnaður við hefðbundna útför auðveldlega numið 800 þúsund krónum eða meira. Þótt sumar útfararstofur gefi kistur fyrir börn og í minni samfélögum sé stundum tekið höndum saman um kostnaðinn, sé slíkur stuðningur ekki alls staðar í boði. „Mér finnst bara ekki eðlilegt að fólk þurfi að ganga í gegnum það að missa barnið sitt og fá svo hátt í milljón króna reikning fyrir að leggja það til hinstu hvílu,“ segir Sindri og bendir á að fjölskyldur sem missa börn hafi oft þegar gengið í gegnum langvarandi veikindi, álag og erfiðleika. Í öðrum tilvikum beri dauðsfallið að með öllu óvæntum hætti. Í báðum tilvikum sé sorgin nægilega þung byrði þótt fjárhagsáhyggjur bætist ekki við.

Ein af grundvallarhugmyndunum á bak við sjóðinn er að aðstandendur þurfi helst aldrei sjálfir að sækja um aðstoð. Sindri sér fyrir sér að útfararstofurnar geti haft milligöngu um styrkina og þannig komið í veg fyrir að fjölskyldur þurfi að standa í umsóknum og skriffinnsku á erfiðustu stundum lífs síns en í aðdraganda stofnunar sjóðsins setti Sindri sig í samband við útfararstofur víða um land til að kynna sér stöðuna og kanna hvernig sjóðurinn gæti nýst best.

„Þú ert að skipuleggja jarðarför, búinn að ganga í gegnum stærstu sorg lífs þíns og átt svo að fara að sækja um einhverja styrki. Mér finnst það bara fyrir neðan allar hellur.“ Hann vill að aðstoðin geti orðið sjálfsagður hluti af þjónustunni og að útfararstofur geti einfaldlega upplýst fjölskyldur um að styrkur sé í boði. Þannig verði sjóðurinn ekki aðeins fjárhagsleg aðstoð heldur líka leið til að hlífa fólki við því að þurfa að biðja um hjálp á viðkvæmum tíma. Þá leggur Sindri líka áherslu á að sjóðurinn eigi ekki að koma í stað þeirrar aðstoðar sem þegar er veitt, heldur bæta við hana.

Miðað við þá forsendu að um 30 einstaklingar undir 18 ára létust á ári og hver útför kostaði 800 þúsund krónur þyrfti um 24 milljónir króna árlega í sjóðinn til þess að dæmið gengi upp.

Vantar 24 milljónir

Framtíðarsýn sjóðsins er einföld: Að engir foreldrar þurfi að hafa áhyggjur af því hvernig þeir eigi að greiða fyrir útför barnsins síns. Þótt markmiðið sé stórt telur Sindri það alls ekki óraunhæft. Hann hefur skoðað tölur um andlát barna og unglinga hér á landi og reiknað út hvað þyrfti til að sjóðurinn gæti staðið undir útförum þeirra. Miðað við þá forsendu að um 30 einstaklingar undir 18 ára létust á ári og hver útför kostaði 800 þúsund krónur þyrfti um 24 milljónir króna árlega í sjóðinn til þess að dæmið gengi upp.

Það hljómar kannski mikið en Sindri hefur brotið upphæðina niður í mun smærri einingar. „Ef ég get fengið um 2.200 manns til að leggja fram andvirði eins kaffibolla á mánuði, þá gæti það staðið undir þessu öllu,“ segir Sindri sem telur að með nægilega mörgum reglulegum styrktaraðilum væri hægt að byggja upp sjóð sem gæti veitt fjölskyldum raunverulegt öryggi.

Á vefsíðu sjóðsins er hægt að velja mánaðarleg framlög eða styrkja með stakri greiðslu. Upphæðin er á valdi hvers og eins. Sindri leggur áherslu á að engin laun séu greidd fyrir hans vinnu við sjóðinn en hann hefur nýtt frítíma sinn undanfarin tvö ár við að koma verkefninu á fót og hefur m.a. séð um gerð vefsíðunnar, kynnt sér lagaumhverfi almannaheillafélaga, komið greiðslukerfi í gagnið og átt samskipti við útfararstofur og opinbera aðila. Næsta skref er að leita til fyrirtækja og fá þau til að gerast bakhjarlar sjóðsins. Hann vonast einnig til að finna aðila sem geti lagt verkefninu lið með sérfræðiþekkingu og þjónustu.

Ef ég get fengið um 2.200 manns til að leggja fram andvirði eins kaffibolla á mánuði, þá gæti það staðið undir þessu öllu.

Vantar farveg fyrir viljann til að hjálpa

Þótt fyrsta markmiðið sé að standa undir útfararkostnaði barna og unglinga sér Sindri fyrir sér að starfsemin gæti síðar orðið víðtækari ef nægilegt fjármagn safnast. Hann nefnir meðal annars kostnað við að flytja látna einstaklinga heim frá útlöndum, áfallahjálp og sálfræðiaðstoð fyrir syrgjandi fjölskyldur. „Kannski væri hægt að greiða fyrir sálfræðitíma foreldra eða aðstandenda, sex eða tíu skipti, í samvinnu við sérfræðinga sem sinna slíku.“ Hann segir þó mikilvægt að fara ekki fram úr sér. Fyrsta verkefnið sé að byggja upp traustan sjóð sem geti staðið undir því hlutverki sem honum er ætlað.

Sjálfur segist hann almennt hafa sterka löngun til að hjálpa fólki og telur að samfélagið hafi að einhverju leyti fjarlægst þá hugsun að fólk beri sameiginlega ábyrgð hvert á öðru. Fólk sé orðið uppteknara af eigin lífi og síður meðvitað um erfiðleika annarra. Hann telur þó að viljinn til að hjálpa sé enn til staðar. Stundum þurfi einfaldlega að búa til farveg fyrir hann og það er einmitt það sem hann vonast til að Útfararsjóður barna og unglinga geti orðið.

    • Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðir til að styrkja starfsemina má finna á utfararsjodur.is