Fara í efni
Fréttir

Fölsuð frétt og heimasíða í nafni Samherja

Kaldbakur EA, skip í eigu Samherja. Myndin er af heimasíðu fyrirtækisins.

Samherji birti í morgun tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem sagt er frá því að athygli fyrirtækisins hafi verið vakin á falsaðri fréttatilkynningu í nafni fyrirtækisins sem send hafi verið til erlendra fjölmiðla, ásamt því að sett hafi verið upp fölsk heimasíða.

Tilkynning Samherja á heimasíðu sinni: 

Athygli Samherja hefur verið vakin á því að svo virðist sem óprúttnir aðilar hafi sent falsaða fréttatilkynningu í nafni Samherja til erlendra fjölmiðla. Þá virðast sömu aðilar hafa sett upp falska heimasíðu í nafni fyrirtækisins sem hýst er í Bretlandi og samhliða dreift fölsuðum auglýsingaborðum.

Tekið skal fram að hvorki heimasíðan né fréttatilkynningin hafa nein tengsl við Samherja eða starfsmenn fyrirtækisins. Svo virðist sem um sé að ræða skipulagða árás sem fyrirtækið tekur mjög alvarlega. Samherji mun óska eftir því að hin falska vefsíða verði tekin niður.

Vegna falsaðrar fréttatilkynningar og heimasíðu | Samherji hf.