Fara í efni
Fréttir

Fólk klippi trjágróður frá stéttum og stígum

Ljósmynd: María Helena Tryggvadóttir

Minnt er á það, á vef Akureyrarbæjar, að trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk geti skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Jafnframt að garðeigendur beri ábygð á sínum gróðri.

„Akureyrarbær hvetur garðeigendur til að klippa tré sín svo þau hvorki trufli vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu,“ segir í tilkynningunni.

„Gróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur þrengt að umferð og nauðsynlegri þjónustu á göngustígum, gangstéttum og götum, og dregið úr öryggi vegfarenda. Þá þarf að snyrta gróðurinn þannig að allir komist ferða sinna án hindrana. Einnig þurfa umferðarmerki að sjást vel og gróður má ekki byrgja götu- og stígalýsingu.“

Garðeigendur eru minntir á að samkvæmt byggingareglugerð þurfa þeir að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“

Snyrting gróðurs skal vera lokið fyrir 29. ágúst næstkomandi, „en að þeim tíma liðnum verður gróður fjarlægður á kostnað lóðarhafa.“

Hægt er að senda ábendinugar um trjágróður sem er til „vandræða“ á ábendingarvef Akureyrarbæjar á heimasíðu sveitarfélagsins.

„Sýnum tillitssemi og klippum trjágróður frá stéttum og stígum,“ segir á vef bæjarins.